Page 1 of 1

E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Wed 08. Jul 2009 15:36
by JJsurprice
E30 blæja ´86

Bíllinn neitaði að fara í gang hjá mér.
Ekki hægt að draga í gang.
Dælan framan við vinstra afturhjólið lekur smá bensíni þegar ég starta.

E-r hugmyndir áður en ég fer að taka í sundur??

Er komin með fráhvarfseinkenni vegna bílleysis... hjálp.

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Wed 08. Jul 2009 15:44
by gstuning
Athuga bara sama og alltaf,

kemur bensín að spíssunum, er neisti?

Getur tekið bensin slönguna sem tengist beint í fuel railið og prufað að stinga henni í 0.5L flösku, og prufað að starta,
Ef það kemur bensín þá er líklegt að dælan sé í lagi og öll sú rás.

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Thu 09. Jul 2009 15:08
by ellipjakkur
skjóttu svo myndir af bílnum snöggvast ;) hlakka til að sjá hann :P

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Thu 09. Jul 2009 19:13
by JJsurprice
Já takk, prófa þetta...
Hér eru nokkrar myndir :o

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Fri 10. Jul 2009 09:24
by ellipjakkur
vá hvað hann er flottur og ég sakna hans :argh:

er nokkuð vesen á grindinni fyrir blæjuna ?

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 12:40
by JJsurprice
já takk :) nei nei hún virkar fínt. Það þarf bara að fixa þetta bensíndæluvesen þá er hann gúd.

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 12:50
by JJsurprice
Búið að skipta um bensíndælu eeennn... Ég fæ ekki neista á kertin...

Mælist spenna úr háspennukefli, bæði plús og mínus,
búið að skipta um kveikjuhamar,
spurning hvort kveikjulokið sé ónýtt.

Kaupa kveikjulok og vita hvað gerist.. er nokkuð annað sem kæmi frekar til greina??

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 12:59
by gstuning
Kemur neisti frá keflinu?

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 12:54
by JJsurprice
Nei kemur ekki neisti en mælist straumur báðum megin.

Re: E30 blæja.. bensíndæla biluð?

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 12:56
by JJsurprice
Búið að prófa önnur kefli... hvað í f. er að?!?