bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bilun í loftkælingu á e39
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38472
Page 1 of 1

Author:  Zed III [ Tue 07. Jul 2009 19:15 ]
Post subject:  Bilun í loftkælingu á e39

ég er með e39 sem hefur meðal annars bilaða loftkælingu. Getur þetta tengst hitamælinum sem er líka bilaður og segir að það sé 40 gráðu frost (loftkælingin dettur út ef hitinn er minni en 5 gráður) ?

Author:  maggib [ Wed 08. Jul 2009 21:05 ]
Post subject:  Re: Bilun í loftkælingu á e39

ég hefði haldið að það væri hitinn inni í bílnum sem ákveður hvort ac fer í gang eða ekki
en ætla ekki að sverja fyrir það...
það getur verið ýmislegt annað bilað eða kerfið hreinlega tómt! þá fer dælan ekkert í gang!

Author:  Zed III [ Wed 08. Jul 2009 22:04 ]
Post subject:  Re: Bilun í loftkælingu á e39

skipti um skynjara og hitamælirinn sýnir núna réttan útihita. Þetta lagaði þó ekki loftkælinguna. Spurning hvort þetta sé tómt, þarf þetta ekki að leka til að vera tómt ?

Author:  IngóJP [ Mon 13. Jul 2009 18:02 ]
Post subject:  Re: Bilun í loftkælingu á e39

Zed III wrote:
skipti um skynjara og hitamælirinn sýnir núna réttan útihita. Þetta lagaði þó ekki loftkælinguna. Spurning hvort þetta sé tómt, þarf þetta ekki að leka til að vera tómt ?



Nei nei það þarf að fylla á þetta kveikir hún ekkert á sér? Var þannig hjá mér í e46 sem ég átti kveikti á sér en kom bara leiðindarhljóð lagaðist eftir að það var fyllt á þetta

Author:  Zed III [ Mon 13. Jul 2009 19:00 ]
Post subject:  Re: Bilun í loftkælingu á e39

það er víst eitthvað fleira í gangi, viftan utan á vatnskassanum er dauð eins og dódó fugl. Byrja á því að beintengja hana og sjá hvort mótorinn sé bilaður eða eitthvað annað.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/