Page 1 of 1

BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 11:41
by Stanky
Sælir.

Móðir mín á BMW X5 árg 2000.

Bilunin lýsir sér svo: Hún keyrir bílinn og allt í einu kemur "dúnk hljóð", bíllinn missir kraft og ljósin í mælaborði blikka (rafgeymisljósið og allt það dót). Eftir nokkrar sekúndur kikkar allt inn og bíllinn keyrir eðlilega.

Þetta hefur núna gerst 3x hjá gömlu og hún er mjög paranojuð yfir þessu.

Hefur einhver lent í þessu áður nú eða kann einhver skýringar á þessu?

kv,
haukur

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 12:10
by IceDev
Loftlæðisskynjari, háspennukefli ( líklegast að mínu mati ) eða að rafgeymir sé ekki nógu vel festur

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 15:16
by jens
Jarðtengingin ( - póllinn ) í mótor/stell

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 20:59
by Lindemann
það eru mjög miklar líkur á að þetta sé annaðhvort plúsinn við geymi eða jarðtenging við mótor..........jarðtenging frá mótor útí boddí er frekar líklegt þar sem það er alltaf á hreyfingu.

loftflæðiskynjari eða háspennukefli orsakar ekki að mælaborðsljós fari að blikka.

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 22:27
by Alpina
Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 22:42
by Geirinn
Alpina wrote:Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur


Hvar dregur þú mörkin ?

Er bannað að spyrja um bilanir í X5 og sambærilega bíla hér á þessu spjalli ?

Dónt bí stjúpid :)

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 22:42
by Djofullinn
Alpina wrote:Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur

Til þess að spara sér pening? :hmm:
Óþarfi að borga einhverju verkstæði fyrir bilanagreiningu ef menn geta lagað þetta sjálfir

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 22:44
by Alpina
Djofullinn wrote:
Alpina wrote:Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur

Til þess að spara sér pening? :hmm:
Óþarfi að borga einhverju verkstæði fyrir bilanagreiningu ef menn geta lagað þetta sjálfir



En að hringja í umboðið :roll:

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 22:51
by Geirinn
Alpina wrote:
Djofullinn wrote:
Alpina wrote:Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur

Til þess að spara sér pening? :hmm:
Óþarfi að borga einhverju verkstæði fyrir bilanagreiningu ef menn geta lagað þetta sjálfir



En að hringja í umboðið :roll:


En að spyrja á BMW áhugamannaspjalli þar sem afskaplega margir vita mikið um BMW troubleshooting og common issues ? :)

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 23:06
by gardara
Alpina wrote:Afhverju er fólk að eiga svona bíla og leita svara á svona spjallborði ???

Ath ,, ekkert dizz


Umboðið og eða önnur verkstæði sem eru í BMW viðgerðum ættu eflaust að geta svarað þessu betur



Afhverju að hafa bmw spjallborð?
Til þess að geta offtopicað í drasl?

Ég hef oft leitað ráða hér og oftast hefur bilanagreiningin frá meðlimum kraftsins verið rétt!

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 15:36
by gunnar
Vááá það þarf að panta Vælubílinn fyrir Sveinbjörn núna...

Ef Tæknilegar umræður eru ekki fyrir svona þræði þá veit ég nú ekki hvað :lol: :lol: :lol:

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 16:01
by Zed III
Ég er búinn að læra helling af svona þráðum frá öðrum, þetta gagnast ekki bara þeim sem senda inn fyrirspurnirnar.

Keep em comming...

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 16:02
by Lindemann
pointið hjá Sveinbirni er nú sennilega eitthvað á þá leið að X5 eru nýlegir bílar, dýrir og flóknir(ef miðað er við e30,e32,e34 o.s.frv.) og þar af leiðandi séu það ekki bílar sem eigendurnir gera mikið við sjálfir.

En nú eru bara breyttir tímar, x5(e53) eru farnir að eldast og nú eru allir farnir að halda að sér höndum varðandi fjárútlát.
Þeir sem voru vanir að fara með bílana sína í umboðið um leið og það heyrist tíst í innréttingunni eða eitthvað þvíumlíkt reyna núna að bjarga sér sjálfir eftir bestu getu.


Í þessu tilfelli er alveg hugsanlega hægt að spara sér góðan pening með því að yfirfara helstu atriðin sem er bent á hérna......og hugsanlega bara skipta um einn jarðkapal.

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 20:18
by Saxi
,,Ég varð ekki ríkur af því að skrifa margar ávísanir" heyrði ég einhversstaðar sagt.

Sami X5 3.0D búinn að vera óveðsettur á heimilinu síðan 2003. Nú ekinn um 220 þús. Ég er reynslunni ríkari, þekki reyndar ekki þetta umrædda vandamál en er orðinn nokkuð sjóaður í ýmsu sem kemur að X5. Ótrúlegustu smábilanir sem koma upp í þessu og ef maður eltist við umboð í hvert skipti þá fyndu flestir til í buddunni.

Nóg hefur nú farið af peningum í viðhald á þessu samt. Auðvitað hefur verið leitað til B&L en oftast hefur maður nú athugað hvort eitthvað er hægt að gera sjálfur. Maður kallar sig nú áhugamann for christ sake!

kv.
Egill

Re: BMW X5 árg 2000 - Rafmagn "slær" út.

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 23:37
by JonHrafn
Rafgeymistengingar eða eitthvað tölvuhelvítið er með diss. Í eðalbíla með hann í bilanagreiningu!