bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
bilun í sjálfskiptingu í e39 540 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38275 |
Page 1 of 1 |
Author: | Zed III [ Sun 28. Jun 2009 19:53 ] |
Post subject: | bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
daginn, Það er einn 540 til sölu hér á síðunni með eitthvað crooked skiptingu. Ég googlaði þetta og fann ýmsa möguleika, frá hraðaskynjara og rafgeymi að kassanum sjálfum. Lýsingin á biluninni var þessi: Skiptingin er líka búin að vera svoldið skrítin stundum neitar hún að skipta sér upp úr 2 , 3 eða 4 í d-inu en þá dugir að slökkva og kveikja aftur á bílnum. Gæti verið að skiptingar vesenið tengis abs skynjaranum byrjaði um svipað leyti. Er einhver hér með reynslu af svipuðu máli ? edit: steptronic skiptingin virkar víst fínt. |
Author: | slapi [ Sun 28. Jun 2009 21:11 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
Meira að segja ef að afturdekk eru misslitin getur það haft áhrif á skiptingarhegðun þannig ef að það er einhvern on/off bilun í abskerfinu getur það vissulega haft áhrif. Eina leiðin til vera viss er að láta lesa. |
Author: | Mánisnær [ Mon 29. Jun 2009 20:47 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
Er þetta e39 bíll? |
Author: | ///M [ Mon 29. Jun 2009 21:25 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
Mánisnær wrote: Er þetta e39 bíll? Tel það mjög líklegt þar sem hann tekur sérstaklega fram að þetta sé e39 ![]() |
Author: | Mánisnær [ Tue 30. Jun 2009 01:35 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
Jááá bara vera viss ![]() |
Author: | Danni [ Wed 01. Jul 2009 06:09 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
Ég lenti í því á mínum um tímabil að þegar ég setti bílinn í gang kom "Transmission Failsafe Program" og hann var alltaf í þriðja eða fjórða þrepi. Þá var rafgeymirinn eitthvað að stríða mér, hlóð hann yfir nótt og setti í aftur og þetta hefur ekki gerst síðan. |
Author: | Einari [ Thu 02. Jul 2009 22:02 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
lenti í því á e39 523 að abs ljósið kviknaði og um leið hætti skiptingin að vilja skipta sér sjálf í 3. gír, þá setti ég alltaf bara í steptronicið og skipti upp og setti hann síðan aftur í drive og þá skipti hann sér eðlilega í 4 og 5 gír. þannig að það borgar sig að byrja á að gera við absið og athuga hvort að hitt lagist ekki við það. passa líka að bílinn sé örugglega á jafn háum dekkjum hringinn. |
Author: | Zed III [ Fri 03. Jul 2009 05:45 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
takk fyrir ábendingarnar dekkin og abs-ið verða fyrsta og annað tékk |
Author: | Tommi Camaro [ Tue 07. Jul 2009 03:42 ] |
Post subject: | Re: bilun í sjálfskiptingu í e39 540 |
láta bara lesa skiptinguna í honum, þá færðu að vita yfir hverju hún er að kvarta |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |