bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Olíuljós í E30 1800cc 1987
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38266
Page 1 of 1

Author:  velocity [ Sun 28. Jun 2009 16:21 ]
Post subject:  Olíuljós í E30 1800cc 1987

Sælir, ég var að vonast til að þið gætuð aðstoðað mig aðeins.

Málið er að olíuljósið í mælaborðinu slokknaði ekki eftir að bíllinn var gangsettur (hef ekkert sett í gang eftir það).

Virðist vera næg olía á mótornum en það sem ég var að láta mér detta í hug er að annað hvort er olíudælan að svíkja
mig eða neminn neðst í pönnunni??

Hef ekki viljað setja í gang og ath hvort ljósið fari af við að taka plöggin af nemanum....

Hefur ekki einhver reynslu af þessu dæmi?? Öll ráð vel þegin.

Er reyndar með varahlutabíl sem er með 1600cc mótor (1990), er sama olíudælan í þessum mótorum??

Author:  Djofullinn [ Sun 28. Jun 2009 17:54 ]
Post subject:  Re: Olíuljós í E30 1800cc 1987

Tékkaðu fyrst á olíuþrýstingsnemanum, annars er það væntanlega olíudælan.

Author:  T-bone [ Mon 29. Jun 2009 07:55 ]
Post subject:  Re: Olíuljós í E30 1800cc 1987

tegar eg skipti um oliupönnu undir minum vildi ljosid ekki slökkna. Gangurinn i biloum var finn og allt, en ljosid slokknadi bara ekki. Eg opnadi tetta aftur og setti pakkningarlim a oliudæluna, tvi mer fannst liklegast ad hun væri ad draga loft eda eitthvad svoleidisg. Svo setti eg tetta saman aftur, en oliuljosid logadi enn. Eg setti bilinn nokkrum sinnum i gang, tar sem hljodid i honum var fint. Svo eitt skiptid er hann buinn ad vera i gangi svona 5 min, kiki eg inn i bil, og viti menn. Ljosid slokknad! Hef ekki hugmynd um hvad gerðist...

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/