bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38251
Page 1 of 1

Author:  ömmudriver [ Sat 27. Jun 2009 21:29 ]
Post subject:  Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

Sælir félagar,

ég ætlaði að fara að kaupa litla vélarstandinn í dag en svo rak ég í rogastans þegar að ég fór að spá í löppunum á standinum, þessi litli er með þrjár s.s. eins og T en þessi stóri er með fjórar eða eins og H +a hlið.

Vonandi skiljið þið hvað ég á við :oops:

En það sem ég var að spá er að maður er að fara að treysta þessu til þess að halda uppi vélinni og svo þarf maður að færa þetta til og þá vill ég ekki sjá þetta hrynja í gólfið vegna óstöðuleika :shock: :?

Svo ég spyr; hefur einhver reynslu af þessum stöndum og er þessi litli eitthvað óstöðugur eða er ég bara með vott af ímyndunarveiki :oops: :lol:

Kv,

Author:  gstuning [ Sat 27. Jun 2009 22:09 ]
Post subject:  Re: Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

T gaurinn er alveg ágætur,
hef alltaf verið með svoleiðis.

Author:  Axel Jóhann [ Sun 28. Jun 2009 05:09 ]
Post subject:  Re: Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

Ég hef bara notast við þennan stóra en ég hugsa að þessi litli eigi ekkert eftir að hrynja í gólfið sko! :lol:

Author:  Twincam [ Sun 28. Jun 2009 07:55 ]
Post subject:  Re: Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

Við strákarnir erum bæði með H-standa og T-standa á verkstæðinu... enginn af þeim hefur farið á hliðina..

En svo er annað, nú veit ég ekki hvað standarnir þarna kosta, en ef það er ekki mikill verðmunur, þá myndi ég frekar taka H-standinn, þar sem hann ber meira. Fínt að hafa þannig ef þú t.d. þarft einhverntíma að setja í hann þunga vél. T.d. V8 eða eitthvað álíka ;)

Author:  ömmudriver [ Sun 28. Jun 2009 17:44 ]
Post subject:  Re: Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

Já ok, takk fyrir svörin strákar!

En þessi litli kostar 16.xxxkr. og stóri 22.xxxkr.

Author:  Astijons [ Sun 28. Jun 2009 18:59 ]
Post subject:  Re: Litli VS. stóri vélarstandur í Verkfæralagernum

pff kaupa bara báða þá :P

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/