Sælir félagar,
ég ætlaði að fara að kaupa litla vélarstandinn í dag en svo rak ég í rogastans þegar að ég fór að spá í löppunum á standinum, þessi litli er með þrjár s.s. eins og T en þessi stóri er með fjórar eða eins og H +a hlið.
Vonandi skiljið þið hvað ég á við
En það sem ég var að spá er að maður er að fara að treysta þessu til þess að halda uppi vélinni og svo þarf maður að færa þetta til og þá vill ég ekki sjá þetta hrynja í gólfið vegna óstöðuleika
Svo ég spyr; hefur einhver reynslu af þessum stöndum og er þessi litli eitthvað óstöðugur eða er ég bara með vott af ímyndunarveiki
Kv,