bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

M20B25 stroker pælingar.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37974
Page 1 of 3

Author:  JonFreyr [ Sat 13. Jun 2009 18:41 ]
Post subject:  M20B25 stroker pælingar.

Er búinn að eyða nokkrum kvöldum á Google og finn ekki svarið við minni spurningu.....veit að það koma nokkrir sveifarásar til greina en vill sterkan sveifarás sem þolir talsverðan snúning. Er búinn að finna annan M20 mótor sem verður notaður í þetta hobby-verkefni, eina sem hrjáir hann er slappur knastás. Er búinn að finna verkstæði í Svíþjóð sem tekur heddið að sér fyrir skikkanlegan pening, nóg af verkstæðum hérna í DK sem geta borað blokkina og fiffað hana til.

Stóra spurningin er hins vegar hvaða sveifarás hentar best í svona dútl? Allar ábendingar og pælingar eru afskaplega vel þegnar.

Author:  Einarsss [ Sat 13. Jun 2009 19:39 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

gætir farið í t.d sveifarás úr 324td aka M21, hann á víst að vera eins og úr m20b27 nema hann er þrykktur 8) bætt svo við stimplum og stöngum úr b27 mótor og þá ertu kominn með 2.7L stróker án þess að þurfa bora út blokkina.. með þessu notaru auðvitað 325i hedd og væntanlega með öðrum ás þar sem þú þarft að skipta um hann hvort eð er ;)

Author:  JonFreyr [ Sat 13. Jun 2009 19:50 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Ætlaði að kaupa 2.9L kit frá IE en það er bara svo ógeðslega dýrt dæmi út af flutningsgjöldum, tollum og öðrum gjöldum. Vill þá frekar finna réttu partana hérna í DK eða í UK og byggja út frá því. Þjappan verður sú sama og IE mælir með, stefni á léttan innmat og sæmilega hátt rev-limit.

Author:  Einarsss [ Sat 13. Jun 2009 20:05 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

aight, ertu búinn að skoða sölu síðuna hjá ppf sweden? mikið til af dóti þar


http://www.pure-pf.com/webshop/ppf_webs ... /index.php

myndi mæla með stífari ventlagormum og öðrum rockerörmum :thup:

Author:  gstuning [ Sat 13. Jun 2009 20:10 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Hvað ætlarru að gera með vélina og hvað viltu mikið af höum.

Author:  JonFreyr [ Sun 14. Jun 2009 07:52 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Blokkin plönuð og boruð út í 86mm, heddið portað og 1mm yfirstærð af ventlum, sterkari rocker armar og gormar. Extrude hone intake og big-bore ThrottleBody, ég á auka intake og TB og er kominn með annan mótor þannig að bíllinn þarf ekki að standa vélarlaus á meðan. Þetta með hestöflin.....ef ég næ yfir 200 þá verð ég sáttur. Málið er bara að minn mótor er orðinn slappur, hann endist vonandi haustið og veturinn ef ég fer varlega. Gírkassinn lekur með pakkdós og drifið er í raun það eina sem er ennþá 100%. Þannig að, af hverju ekki kaupa annan mótor fyrir lítinn pening og gera hann skemmtilegan og reliable fyrir næsta sumar. Erum nokkrir vinnufélagar sem ætlum að leigja aðstöðu saman, ekki stór kostnaðarliður þar.

Veit að allir eru að turbóa en ég hef einfaldlega ekki peninga í það, er líka alltaf vesen með skoðun hérna úti. Með stroker kemst ég í gegnum skoðun því að mótorinn lítur nokkurn veginn OEM út fyrir utan "flækjur".

Author:  gstuning [ Sun 14. Jun 2009 11:39 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Þig vantar enga rev maskínu til að ná yfir 200hö.

Og í raun þarftu ekki að bore vélina það væri alveg nóg að stróka.
B28 vélin mín er einmitt dæmi um það, gætir farið sömu leið nema skipta úr original ás fyrir einhvern 288 ás.
Þá ertu kominn yfir 200hö alveg leikandi.

84mm bore
84mm stroke - M52B28 sveifarás
130mm , 320i stangir

325i stimplar , hvaða stimpla þú tekur hefur svo áhrif á hvað þjappan verður, 8.8:1 stimplarnir og þetta stroke + rod lengd gefur 9.1 þjöppu með original heddpakkningu og myndi ég telja það alveg mjög fínt þannig séð.
9.7:1 stimplarnir gefa aðeins yfir 10:1 þá.

Spacer framann á sveifarásinn til að fylla uppí gatið.

288 knastás.

Allt sem þú taldir upp.

Þá ertu kominn í 215hö cirka og með flott low end tog.
Væri líklega sniðugt að fá eða búa til stillanlegann tíma gír til að geta fært powerbandið til.
Ef þú ferð í að bora vélina

Þá myndi ég mæla með B28 ásnum + 135mm stangir með custom stimplum, þannig færðu mjög gott rod/stroke ratio og ættir að hafa meira peak power. 86mm bore og 84mm stroke myndi líklega geta komið þér yfir 220hö.

Author:  Stefan325i [ Sun 14. Jun 2009 12:30 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Ég á m52b28 sveifarás og spacer ef þú vilt kaupa hann hérna á íslandi.

Author:  JonFreyr [ Sun 14. Jun 2009 12:55 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

STEBBI GAMLI VIN......hvað viltu fá fyrir þetta :lol: og hvað er raunhæft ? Hvernig er ástandið á þessum ás?

Author:  Alpina [ Sun 14. Jun 2009 16:36 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

gstuning wrote:
Þig vantar enga rev maskínu til að ná yfir 200hö.

Og í raun þarftu ekki að bore vélina það væri alveg nóg að stróka.
B28 vélin mín er einmitt dæmi um það, gætir farið sömu leið nema skipta úr original ás fyrir einhvern 288 ás.
Þá ertu kominn yfir 200hö alveg leikandi.

84mm bore
84mm stroke - M52B28 sveifarás
130mm , 320i stangir

325i stimplar , hvaða stimpla þú tekur hefur svo áhrif á hvað þjappan verður, 8.8:1 stimplarnir og þetta stroke + rod lengd gefur 9.1 þjöppu með original heddpakkningu og myndi ég telja það alveg mjög fínt þannig séð.
9.7:1 stimplarnir gefa aðeins yfir 10:1 þá.

Spacer framann á sveifarásinn til að fylla uppí gatið.

288 knastás.

Allt sem þú taldir upp.

Þá ertu kominn í 215hö cirka og með flott low end tog.
Væri líklega sniðugt að fá eða búa til stillanlegann tíma gír til að geta fært powerbandið til.
Ef þú ferð í að bora vélina

Þá myndi ég mæla með B28 ásnum + 135mm stangir með custom stimplum, þannig færðu mjög gott rod/stroke ratio og ættir að hafa meira peak power. 86mm bore og 84mm stroke myndi líklega geta komið þér yfir 220hö.


Ef að menn eru að fara í svona aðgerð.. sem hlýtur að teljast fokdýrt, :o :o :o
þá tæki ég dbilas soggrein og nýtt mapp

Oliver @ tauber sagði okkur frá svona moddi sem gaf 280 ps,, með öllu ,, þeas unnið hedd og gerea og gera ,, flækjur með eðlilega og allur pakkinn,, held einmitt að það hafi verið 2.8 útfærsla

en þessi 280 ps er BARA lýgileg tala,, ætla ekki að staðfesta eitt eða neitt,,

Author:  JonFreyr [ Sun 14. Jun 2009 17:23 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Á gengi dagsins er þetta fokdýrt....annars bara dýrt :) en hafa skal í huga að þetta er ekki eitthvað sem ég geri yfir helgi. DBilas er ógeðslega dýrt og eiginlega engan veginn réttlætanlegt á meðan ég er ekki að smíða mér track-bíl, eyði frekar pening í að gera gírkassa góðan og láta laga bílstjórasætið. Þess má geta Sveinbjörn að ég get látið heilmála bílinn minn fyrir sama pening og DBilas kostar hjá Koed :lol:

Ég veit ekki alveg hvernig ég tækla tölvumálin en það væri auðvitað geðveikt að vera með standalone, fullt af færum gaurum í nágrenni Malmö sem gætu aðstoðað við það. En byrja á byrjuninni og fæ mótor í hús, svo rífa og skoða :)

Author:  birkire [ Sun 14. Jun 2009 17:33 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

bööö settu bara M50 í bílinn, gefins hestöfl og skemmtilegri vél

Author:  JonFreyr [ Sun 14. Jun 2009 17:44 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

birkire wrote:
bööö settu bara M50 í bílinn, gefins hestöfl og skemmtilegri vél



Miklu meiri lærdómur að fara hina leiðina, mikið ódýrara að kaupa notaða M50 og swappa eeeeen......mig langar ekki.

Author:  Alpina [ Sun 14. Jun 2009 17:57 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Efa þú ert að fara í swapp

S50 ALLTAF

þetta er glórulaust hjá þér.. að mínu mati..

en ég myndi reyndar ekki setja S50 í touring :thup:

Author:  JonFreyr [ Sun 14. Jun 2009 18:19 ]
Post subject:  Re: M20B25 stroker pælingar.

Alpina wrote:
Efa þú ert að fara í swapp

S50 ALLTAF

þetta er glórulaust hjá þér.. að mínu mati..

en ég myndi reyndar ekki setja S50 í touring :thup:



Helmingur þess (að minnsta kosti) sem spjallverjar taka sér fyrir hendur er glórulaust, þó svo að mér finnist ekki svo vitlaust að dunda sér í þessu næsta hálfa eða heila árið. Ég kemst ekki í gegnum skoðun með S50 mótor....nema ég fari út í kostnaðarsamar breytingar og borgi auka "afgift". Touring er undir 1300kg og þyngdardreifing er afskaplega góð, 200+ Hp N/A mótor heillar mig meira en Turbo eða S50 swap. Ég vill fara þessa leiðina og má vel vera að ég sé skrýtinn fyrir vikið. Svona eins og menn sem vilja BARA sjúklega feitar konur eða konur sem eru ennþá með pulsu....eða jafnvel nýbúnar að láta sauma á sig pulsu.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/