Ég er með slatta af hlutum út í skúr sem ég veit ekki hvað eru nákvæmlega.
Allt BMW dót auðvitað.
Ég er búinn að reyna google/ebay o.fl. en finn þetta bara ekki í hvað þetta er.
Ef einhver gæti hjálpað mér þá yrði ég mjög þakklátur.
Á næstu dögum mun ég taka myndir af þessu til að hjálpa við þetta því sumir
geta borið kennsl á þetta þannig

1. Startari Bosch
Bosch #1 005 821 229
Mig grunar M40 eða M42 en fæ það hvergi staðfest.
2. Tímakeðjulok, efri hluti
Merkt "1 268 579" - "1.3" - "225" og stimplað með árgerð '90/'91
Mig grunar M20
3. Bracket fyrir vökvastýrisdælu
Merkt "1 264 643" - "2.3" - "225"
Mig grunar M20
Með fyrirfram þökk,
Skúli Rúnar