bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Dekkjapælingar á E61
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37919
Page 1 of 1

Author:  Svessi [ Thu 11. Jun 2009 02:00 ]
Post subject:  Dekkjapælingar á E61

EDIT/UPDATE: Við tókum frammdekkin af bílnum hjá bróðir mínum sem er á 540 E39 og hefur stærðina 225/45 17, og ég hélt að þetta væri á 8" breiðum felgum. Þegar ég tek þær felgur af sé ég að þær eru 8,5" breiðar og hann hefur ekki fundið fyrir neinum leiðindum með þessa stærð á svona breiðum felgum þótt þú sjáir að þetta sé í því tæpasta. Skellum þessu undir 525 E61 bílinn og prófum og hann verður strax mun skárri á þessu. Svo við tökum þá ákvörðun að ná okkur í þessa stærð 225/50 17 og setja á þessar orginal felgum sem eru 8" breiðar. Var mjög heppinn, fann hálfslitin Bridgestone Potenza (ódýra týpu af þeim) í stærðinni 225/50 17 og bíllinn er allt annar á eftir, þetta passar fínt á þessar 8" breiðu felgur.
Bíllinn rásar nánast ekkert núna, er mun mýkri, og miklu minni vegahávaði.
Pabbi karlinn er mjög sáttur núna.

---

Erum að spá í þessu fyrir bílinn sem pabba karlinn var að kaupa, 525iA E61.

Bíllinn er á 17" Star spoke - style 122 felgum sem eru 8" breiðar og öll dekkin eru 245/45 17.
Frammdekkin eru slitin Bridgestone run flat tires (sennilega bara orginal dekk) og hann rásar dálítið mikið á þessu.

Hann er alls ekki að eltast við að hafa bílinn á lowprofile eða neitt slíkt, hann vill frekar hafa míkt og þægindi og hann væri meira en fús til þess að fara og fá sér 16" til að ná þeim árangri.
En hann er líka hrifinn af þessum 17" Star spoke felgum, svo hann vill ekkert endilega missa þær.
...og ég vil endilega reyna halda honum á 17" felgunum.

Ég var að spá í hvort væri ekki mesta vitið í því fyrir hann að fá sér 225/50 17 sem frammdekk? Strangt til tekið mælir BMW með því að sú stærð fari á 7,5" breiðar felgur.


Þannig að spurningarnar eru eiginlega þessar:
* 225/50 17 ætti alveg að passa á 8" breiðar felgur án þokkurra vandræða, er það ekki?
* Bíllinn ætti að vera orðinn ansi mjúkur og þægilegur á þessari dekkjastærð, allt sem kallast að rása væri nánast úr sögunni, er það ekki?
* Er eitthvað annað sem ykkur, þér dettur í hug sem við ættum frekar að pæla í?

Hver er með Kumho dekkin núna? Er að spá í því, afþví það eru þokkalega góð Kumho afturdekk á bílnum og ef ég fengi Kumho dekk með sama munstri myndi ég segja að ég væri nokkuð góður.
Ég þekki aðeins Kumho dekkin, þau eru svona með ódýrari sæmilegri dekkjum og yfirleitt í mýkri kanntinum, akkurat það sem pabba karlinum myndi líka.

Author:  thisman [ Thu 11. Jun 2009 08:04 ]
Post subject:  Re: Dekkjapælingar á E61

Mín reynsla er sú að dekkin sjálf, tegundin semsagt, skiptir ekki minna máli en prófóllinn. Var á E46 á 16" 225/50 sem var ljúfur sem lamb og rásaði ekkert á Continental dekkjunum sem hann var á enda engin ástæða til miðað við stærð. Keypti svo Marshall (framleidd af Kumho!) sumardekk undir hann og hann fór að rása alveg eins og vitleysingur og var hreint út sagt vonlaus þangað til Continental dekkin fóru undir hann aftur. Hérna eru fleiri sambærilegar sögur.

Ég myndi því ráðleggja þér að heyra í fólki á E60/61 sem er á sömu felgustærð og þú og á bíl sem rásar ekki og kaupa svo bara nákvæmlega sama gúmmí undir. :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/