bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bmw e30 318
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37781
Page 1 of 1

Author:  Budapestboy [ Thu 04. Jun 2009 21:20 ]
Post subject:  Bmw e30 318

Bróðir minn er að spá í svona bíl...Hann er að sjúga falskt loft hvað þýðir það ? :) hvernig gerir maður við það og er mikið mál að fá dempara að aftan í hann ?

Author:  gunnar [ Thu 04. Jun 2009 22:55 ]
Post subject:  Re: Bmw e30 318

Ef bíllinn er að sjúa "falskt" loft einhvers staðar þá þýðir það að bíllinn er að draga inn loft inn á mótorinn einhvers staðar annars staðar en í gegnum loftsíuna. Þetta getur oft verið afleiðing af rifnum hosum ofl.

Varðandi dempara þá er nú bara best að óska eftir slíku í "Vil kaupa varahluti" hér á spjallinu ef þú villt notað, annars bara að hringja á milli varahlutaverslana og sjá hvað þeir eiga.

Author:  Budapestboy [ Thu 04. Jun 2009 23:26 ]
Post subject:  Re: Bmw e30 318

Takk fyrir það Þá veit ég þetta..

Author:  Zed III [ Fri 05. Jun 2009 08:11 ]
Post subject:  Re: Bmw e30 318

það má bæta við að til að vera viss um að bíllin sé að taka inn falskt loft er hægt að sprauta bremsuhreinsi (brakes and part cleaner, til í verslunum N1 og á fleiri stöðum) yfir hosurnar og manifoldið meðan bíllin er í gangi og hlusta eftir hvort gangurinn breytist eitthvað í stutta stund.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/