bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

málun og ryblettir
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37755
Page 1 of 1

Author:  billi90 [ Wed 03. Jun 2009 23:07 ]
Post subject:  málun og ryblettir

Er mikið mál að láta laga smá rið? var að pæla í að láta laga nokkra riðbleti(eru ekki stórir)...hvað myndi það kosta sirka hja atvinnumanni?

Hvað kostar að lata heilsprauta bil?...bara sirka verð?:D

Author:  Axel Jóhann [ Wed 03. Jun 2009 23:33 ]
Post subject:  Re: málun og ryblettir

heilsprautun ekki undir 400k myndi ég halda í dag.

Author:  Zed III [ Thu 04. Jun 2009 07:08 ]
Post subject:  Re: málun og ryblettir

Verðið er alltaf háð umfanginu og best að kíkja við hjá einhverju sprautuverkstæði til að fá ráðleggingar og verðmat.

því meira sem þú getur gert til að forvinna þetta því ódýrara verður viðgerðin, sama á við með heilsprautunina.

Author:  DABBI SIG [ Fri 05. Jun 2009 00:08 ]
Post subject:  Re: málun og ryblettir

Zed III wrote:
Verðið er alltaf háð umfanginu og best að kíkja við hjá einhverju sprautuverkstæði til að fá ráðleggingar og verðmat.

því meira sem þú getur gert til að forvinna þetta því ódýrara verður viðgerðin, sama á við með heilsprautunina.


Maður hefur þó heyrt að margir vilji ekki taka við bílum í sprautun þar sem forvinna hefur verið gerð af öðrum en viðkomandi...

Author:  Lindemann [ Fri 05. Jun 2009 00:53 ]
Post subject:  Re: málun og ryblettir

DABBI SIG wrote:
Zed III wrote:
Verðið er alltaf háð umfanginu og best að kíkja við hjá einhverju sprautuverkstæði til að fá ráðleggingar og verðmat.

því meira sem þú getur gert til að forvinna þetta því ódýrara verður viðgerðin, sama á við með heilsprautunina.


Maður hefur þó heyrt að margir vilji ekki taka við bílum í sprautun þar sem forvinna hefur verið gerð af öðrum en viðkomandi...


fæst verkstæði vilja taka svoleiðis að sér.....ef menn ætla að vinna bílinn niður sjálfir, þá verða þeir að finna einhvern einstakling sem er til í að gluða yfir bílinn.


verðið á svona fer alveg eftir bílnum og hvað þarf að gera mikla undirvinnu....smá ryðblettir geta verið töluvert meira þegar er byrjað að pússa þá niður.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/