bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

úr ssk í bsk???
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37685
Page 1 of 1

Author:  ottarh [ Sun 31. May 2009 18:51 ]
Post subject:  úr ssk í bsk???

veit einhver hvort mikið vesen sé að setja bsk kassa í 740i '95. afsakið orðbragði en þessar helvítis drasl skiptingar í þessum bil er drasl buin að skipta einu sinni um skiptingu og hun er enn og aftur farin hjá mér mikið að pæla að smella bara bsk i bilinn. er það ekki alveg hægt og hvar fær maður svoleiðis kassa og hvað heitir kassinn????einhver? skiptingin sem er i bilnum heitir 5hp30

Author:  sh4rk [ Sun 31. May 2009 19:57 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

Já þú ert bjartur þetta er ekki ódýrt því að það eina sem er í boði er 6 gíra kassi úr 540i og hann er ekki gefins kostar 600-1200 evrur á ebay og þá á náttla eftir að koma honum hingað en svo hefur möguleika að vera með 5 gíra kassa úr 730 V8 en þar er 5 gírinn beint út þeas ekki yfirgír

Author:  Solid [ Mon 01. Jun 2009 00:45 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

Fyrir utan það að þurfa skipta um pedala og græja cylinder fyrir kúplingu inná bremsukerfið (kannski það sé til staðar, veit ekki).
Svo örugglega mikið af mods sem þarf fyrir að koma skiptingunni fyrir og gírhnúa position á réttan stað.

Author:  Axel Jóhann [ Tue 02. Jun 2009 12:03 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

Þetta er svoldið dund en ekkert óframkvæmanlegt, mest vesenið er örugglega að finna sér gírkassa í þetta og pedalasett.

Author:  slapi [ Tue 02. Jun 2009 14:56 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

Það sem menn hafa oft flaskað á er að láta ekki taka skiptingarnar í gegn bara , í staðinn er keypt einhver skipting af partasölu sem rétt hangir 20-30 þús km. Og menn ganga stundum oftar en einu sinni í gegnum þennan hring.
Þegar uppi er staðið er mjög líklegt að ódýrast fyrir þig er að láta taka skiptinguna upp þó það sé rándýrt.

Author:  Dorivett [ Tue 02. Jun 2009 21:12 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

mér skilst að þessi skipting sem er í honum er sama skipting fór síðast og þá var farið með hana í b&l og hún tekin upp þar en dugði ekki lengur en þetta :(

Author:  saemi [ Tue 02. Jun 2009 23:54 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

Hvernig er skiptingin farin, hvað er bilað?

Author:  Dorivett [ Wed 03. Jun 2009 09:45 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

ég held að það sé það sama og fer yfirleitt í þessum bílum, bakkgírinn

Author:  Bjarkih [ Wed 03. Jun 2009 22:14 ]
Post subject:  Re: úr ssk í bsk???

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=9697

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/