bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Stýrismaskína í E46
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37454
Page 1 of 1

Author:  Leifur [ Fri 22. May 2009 09:09 ]
Post subject:  Stýrismaskína í E46

Ég er með 320i, 2001 árgerð, og hann var að koma úr yfirhalningu frá tækniþjónustu bifreiða og "skrölt vinstra meginn við beygjur" kom í ljós að var ónýt stýrismaskína. Veit einhver hvað svona kostar að skipta um? Ég ætla að reyna að selja bílinn og spurning hvort ég eigi að reyna að selja hann með þessum galla og láta vita eða eyða hvað svo sem það kostar í að laga þetta áður en ég sel hann?

Kærar þakkir

Author:  Geirinn [ Fri 22. May 2009 09:24 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Ef þú ætlar ekki að gera þetta sjálfur þá myndi ég nú bara hringja í Jónka eða eitthvað verkstæði sem getur lagað þetta.

Ég sé ekki að þú sért eitthvað bættur með að við hér á Kraftinum ljúgum einhverri tölu að þér.

Author:  Zed III [ Fri 22. May 2009 12:06 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

það ætti ekki að vera meira en klukkutími að skipta um þetta. Alltaf betra að gera við hlutina áður en maður selur bílinn.

Ódýrast væri að finna notaða maskínu í þetta.

Author:  GunniT [ Fri 22. May 2009 14:17 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Zed III wrote:
það ætti ekki að vera meira en klukkutími að skipta um þetta. Alltaf betra að gera við hlutina áður en maður selur bílinn.

Ódýrast væri að finna notaða maskínu í þetta.


Tekur þú þetta að þér fyrir klukkutíma? :lol:

Author:  JonHrafn [ Fri 22. May 2009 18:34 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.

Author:  ///MR HUNG [ Fri 22. May 2009 19:20 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

JonHrafn wrote:
Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.

Ooooog hvar eru allir þessir partabílar :shock:

Author:  Zed III [ Fri 22. May 2009 19:26 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

GunniT wrote:
Zed III wrote:
það ætti ekki að vera meira en klukkutími að skipta um þetta. Alltaf betra að gera við hlutina áður en maður selur bílinn.

Ódýrast væri að finna notaða maskínu í þetta.


Tekur þú þetta að þér fyrir klukkutíma? :lol:


ég var einn og hálfan að skipta um maskínu hjá mér í skúrnum og hafði aldrei gert þetta áður. Vanur maður með lyftu væri nú ekki lengi að redda þessu.

Kannski er ég bara svona góður 8)

Author:  JonHrafn [ Fri 22. May 2009 19:49 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

///MR HUNG wrote:
JonHrafn wrote:
Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.

Ooooog hvar eru allir þessir partabílar :shock:


Hjá þér til dæmis??? Ekki nenni ég að leita fyrir hann :Þ

Author:  ///MR HUNG [ Fri 22. May 2009 19:58 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Það er ekki búið að rífa marga svona og ég hef rifið þá flesta.

Author:  JonHrafn [ Fri 22. May 2009 20:00 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Ég fékk allavega maskínu hjá þér fyrir systur mína fyrir sirka 2 árum. Áttu ekki handa þessum :þ

Author:  ///MR HUNG [ Fri 22. May 2009 20:01 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46


Author:  Leifur [ Tue 26. May 2009 10:05 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Hvar eru þessir e46 partabílar, og hver er að selja þessa hluti :?:

JonHrafn wrote:
Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.

Author:  Djofullinn [ Tue 26. May 2009 10:23 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Leifur wrote:
Hvar eru þessir e46 partabílar, og hver er að selja þessa hluti :?:

JonHrafn wrote:
Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.

Gaurinn með póstinn fyrir ofan þinn :D

Author:  ///MR HUNG [ Tue 26. May 2009 11:53 ]
Post subject:  Re: Stýrismaskína í E46

Leifur wrote:
Hvar eru þessir e46 partabílar, og hver er að selja þessa hluti :?:

JonHrafn wrote:
Nóg til af e46 partabílum, fá maskínu þar.
Ég á handa þér
8204469

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/