bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Pæling með hátalara, OT?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37278
Page 1 of 1

Author:  JoeJoe [ Thu 14. May 2009 18:08 ]
Post subject:  Pæling með hátalara, OT?

Sælir kraftsmenn, vissi ekki alveg hvar ég ætti að setja þennann póst þannig að ég henti honum bara hér inn ;)

Ég er að leita mér að 4" hátölurum sem eiga að fara afturí 34 touring hjá mér, málið er að það er verulega þröngt þarna og ekkert hægt að troða stærri hátölurum þarna útað það er allt járn í kring. Gatið er 12cm í þvermál sem þíðir að ég gæti kanski troðið aðeins stærri hátölurum þarna inn.

En það sem ég ætlaði að spyrja ykkur um er hvort að þið hafið einhverja reynslu af 4" hátölurum sem eru að skila góðum bassa(ekki eitthvað spark heldur smooth) og þola einhvern hávaða.

Author:  birkire [ Thu 14. May 2009 19:44 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

Myndi frekar eyða pening í framhátalarana.. setti 17cm kenwood með crossover og tweeter frammí minn og sé sko alls ekki eftir því. Voðalega lítið úrval af góðum 13cm hátölurum með góðum bassa hérna.

Author:  JoeJoe [ Thu 14. May 2009 20:58 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

ég er með mjög góða framhátalara og er ekkert að kvarta undan þeim, vantar bara eitthvað til að hafa afturí sem er sæmilegt

Author:  gardara [ Fri 15. May 2009 13:22 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

Ef þú villt bassa og afturí, þá er bassakeila lausnin.

Ég á nokkur stykki til sölu ef þú hefur áhuga :mrgreen:

Author:  JoeJoe [ Fri 15. May 2009 18:03 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

bassakeilur eru ekki töff að mínu mati, er ekki að leitast eftir einhverju sem getur breytt hjartsláttinum í mér, vill bara góða bassahátalara

Author:  gardara [ Fri 15. May 2009 19:08 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

Ég myndi rúlla við í nesradíó og kíkja á hátalarna hjá þeim... Þeir eru snillingar í hljóðkerfa ráðgjöf!

Author:  birkire [ Fri 15. May 2009 19:35 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

Hvað með stóru hátalarana í loftinu á touring :?: Hefurðu mælt hvað þetta er stórt ?

Author:  JoeJoe [ Fri 15. May 2009 20:23 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

birkire wrote:
Hvað með stóru hátalarana í loftinu á touring :?: Hefurðu mælt hvað þetta er stórt ?


ég er að tala um að skipa þeim út, þeir eru bara 4", gatið er 12cm í þvermál

Author:  Einsii [ Sat 16. May 2009 00:16 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

0.5 % líkur á að þú fáir einhvern botn úr 12cm hátölurum í þessum stóra bíl.
LANG einfaldast er að fá sér lítinn og nettann bassahátalara, til alveg fullt af svona stealth box dóti sem þú þarft ekkert að vita af nema bara að það er kominn flottur botn í bílinn..
Ég er alveg sammála þér að búmm búmm sem tekur hálft skottið með glugga og neonljósum er ekki að gera sig en einhver vel pæld og flott lausn sem sést ekki er alveg inn.

Ég gerði þetta í Alpina. faldi 8" bassahátalara og það er bara fínt sánd frá því :)
Myndir af því hér

Author:  JoeJoe [ Sat 16. May 2009 14:23 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

Jamm ætli að það endi ekki með því að ég geri eitthvað svipað, en þegar þú talar um bassahátalara ertu þá ekki að tala um bassakeilu? :?

Author:  Einsii [ Sat 16. May 2009 17:43 ]
Post subject:  Re: Pæling með hátalara, OT?

JoeJoe wrote:
Jamm ætli að það endi ekki með því að ég geri eitthvað svipað, en þegar þú talar um bassahátalara ertu þá ekki að tala um bassakeilu? :?

Já.. Bassahátalarar eru bara yfirleitt kallaðir bassakeilur. En ætli það meigi ekki kalla flestar hátalaraeiningar keilur því þeir eru í laginu einsog keila :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/