Page 1 of 1

WTF!! hvað er að?mælaborðið dettur stundum út hjá mér í sek

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 15:11
by bMw 318is
:x Hvað í satan er í gangi í þessum bíl mínum ég er búinn að eiga bílinn í like 5 mín og er að keyra heim þá dettur mælaborðið út og fer svo inn aftur eftir 1 sek þetta gerðist 5 sinnum á hálftíma. Viss um að búðingurinn sem seldi mér veit hvað er í gangi og hefur svo brussulegast hlegið sig í svefn :x Endilega svarið þið sem megið vera að því það eru nokkrir hérna sem virðast alvega vita sínu viti um þessa bíla.

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 16:33
by Logi
Ertu þá að tala um að mælarnir detti allir í núll bara, eða að ljósin í mælaborðinu detti út?

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 19:49
by bMw 318is
Allir mælarnir detta niður en ljósið helst og svo koma inn öll byrjunarljósin.. Einhverja kenningu um það???

PostPosted: Tue 16. Dec 2003 05:13
by arnib
Gæti verið að alternator sé ekki að hlaða nóg?
Dettur gangurinn í vélinni niður í samhengi við þetta?

PostPosted: Tue 16. Dec 2003 06:34
by Bimmser
Gæti þessi þráður eitthvað hjálpað þér frekar???

PostPosted: Tue 16. Dec 2003 14:27
by bMw 318is
Hef reyndar ekki tekið eftir því að hann verði eitthvað vélarvana við þetta. spr um alternatorinn en þetta gerist ekki þegar hann er orðinn heitur. Geta þeir séð þetta í tækniþjónustu bifreiða þegar ég fer með hann í inspection?
Þar sem við erum núna búnir að brjóta ísinn :) getur þá einhver bent mér á góða síðu til að kaupa vara og aukahluti? þessir í hlekkjunum er fínir en þar er ekki hægt að panta til íslands.

PostPosted: Wed 17. Dec 2003 01:18
by Halli
það er allveg hægt að að panta úr þessum hlekkjum sem eru hér á síðununni ég er búin að prófa það sjálfur :lol: :lol: