bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

"Gas cut" í e34 540
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37067
Page 1 of 2

Author:  JoeJoe [ Wed 06. May 2009 00:38 ]
Post subject:  "Gas cut" í e34 540

Ble, ég hef verið að taka eftir því í bílnum hjá mér að stundum er eins og bíllinn hiksti, þótt að ég sé ekkkert mikið að gefa inn. En þetta gerir mest vart við sig þegar ég gef bílnum alveg inn. Ég var t.d. um daginn í 4. gír með bensíngjöfina alveg í botni en samt sló bíllinn af í eina sek ca. og var að gera þetta af og til.

Er þetta kertin, bensínsía, bensíndælan eða hvað? hverju ætti ég að checka á fyrst?

Author:  jon mar [ Wed 06. May 2009 02:09 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

byrjaðu á að checka hvort að lofthosan frá maf-inu og að throttle body-inu sé nokkuð sprungin eða með gati.

Svoleiðis getur orsakað nákvæmlega það sem þú lýsir.

Author:  JoeJoe [ Thu 07. May 2009 15:22 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

jon mar wrote:
byrjaðu á að checka hvort að lofthosan frá maf-inu og að throttle body-inu sé nokkuð sprungin eða með gati.

Svoleiðis getur orsakað nákvæmlega það sem þú lýsir.


Ég losaði hana frá og allar pakkningar og hosan sjálf eru alveg tip top, ekkert falskt loft að fara inná vélina reikna ég með. Ég tékka næst á kertunum ;) þarf bara að redda mér kertalykli.

Author:  jon mar [ Thu 07. May 2009 22:44 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

kertalykillinn ætti nú að vera í toolkittinu í skottinu. Mér hefur alltaf fundist oem lykillinn bestur þegar kemur að því að skrúfa í bmw

Author:  birkire [ Thu 07. May 2009 23:56 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

Vóóó hvernig takiði kerti úr með lykil ? :shock:

Author:  gardara [ Fri 08. May 2009 16:46 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

birkire wrote:
Vóóó hvernig takiði kerti úr með lykil ? :shock:



Kertalykli....

Image

Author:  Alpina [ Fri 08. May 2009 17:00 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

það eru til 2 gerðir

RUKO eða ASSA

báðir 16 mm

Author:  birkire [ Fri 08. May 2009 19:13 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

:santa: Þetta er toppur ekki lykill


/smartass

Author:  jon mar [ Fri 08. May 2009 19:31 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

birkire wrote:
:santa: Þetta er toppur ekki lykill


/smartass


alla mína ævi hef ég heyrt þetta kallað kertalykil. Toppur er ekki alltaf toppur :wink: Kertalykill er td soldið meira en bara langur toppur :)

Author:  JoeJoe [ Sat 09. May 2009 04:34 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

enda talar maður um topplyklasett ekki satt? same shit

Author:  IngóJP [ Mon 11. May 2009 20:12 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

JoeJoe wrote:
enda talar maður um topplyklasett ekki satt? same shit


Er skrall toppur :lol:

Author:  JoeJoe [ Thu 14. May 2009 11:14 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

Jæja ég skipti um kerti í gær og bíllinn gengur eins og í sögu :P það hefði einhvertíman komist kælivökvi hjá gúmmíhosunum við kertin því að endarnir á gúmmíhosunum voru rauðir á þrem kertum og á einu kertinu hefði lekið ofan í sílenderinn. En þetta virkar allt núna þannig að ég er mega sáttur :mrgreen:

Author:  JoeJoe [ Fri 15. May 2009 18:08 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

Ég jinxaði þetta feitt við að skrifa síðasta svar, bíllinn er farinn að láta aftur eins og hann lét bara ekki eins mikið. Þetta eykst ekkert þótt að ég gefi fulla inngjöf heldur kemur þetta bara alveg random :S, s.s. dettur niður í snúning í eina sek kanski.

Einhverjar hugmyndir?

Author:  gardara [ Fri 15. May 2009 19:07 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

Ekki eitthvað með loftflæði, s.s. súrefnisskynjari eða maf?
Gæti verið sniðugt að láta lesa af honum hjá þér.

Author:  JoeJoe [ Fri 15. May 2009 19:14 ]
Post subject:  Re: "Gas cut" í e34 540

gardara wrote:
Ekki eitthvað með loftflæði, s.s. súrefnisskynjari eða maf?
Gæti verið sniðugt að láta lesa af honum hjá þér.


amm hvað er farið að kosta hjá b&l að láta lesa af?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/