raxions wrote:
Minn E38 750iL er ´97 módel, og er keyrður 197.000km. Hef verið að skrá niður tölurnar núna nokkra tanka í röð, og það er skemmst frá því að segja að tölurnar komu mér talsvert á óvart, þ.e.a.s hversu háar þær voru. Hef verið núna 4 fulla tanka í röð í kringum
29L/100km==> og nota bene að ég er mjög slakur á inngjöfinni, en reyndar eru þetta mest allt stuttar vegalengdir sem ég er að fara,
vélin lang oftast köld og slíkt. En ég virðist ekki ná honum neðar en þetta. Áður en ég fór að skrá þetta niður var ég að vonast til að vera í kring um 20L/100km...það er nú ekki svo gott

Ég er ekki hissa, þetta atriði telur meira en þú heldur!
September 08´ Fór ég með rúma 4 tanka,- c.a. 300ltr á einum mánuði, allt innanbæjar.
Bíllinn var í kringum 13.8ltr/100km hjá mér.
Október 08´Fór ég með einn tank allan mánuðinn! c.a. 70ltr, keyrði nánast BARA í vinnuna og heim c.a. 5km hvor leið. Þá var ég að sjá á milli 18 og 20ltr/100km -gjörsamlega inngjafarlaust!
_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,