bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
CO mengun E39 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37002 |
Page 1 of 1 |
Author: | Maltz [ Sun 03. May 2009 03:18 ] |
Post subject: | CO mengun E39 |
Er í vandræðum, fæ ekki skoðun vegna of hás CO. E39, 520 árg ´96 (´97 módel) ek. 191000 M52 Fyrst var CO mælt 0,49 í hægagangi og 0,47 í >2000 rpm (þarf að vera undir 0,3) Lét lesa tölvu (Bifr. Bjarnhéðinn Ak.)og engrir kódar sjást. Skipti samt um súrefnisskynjara þar sem mér fannst líklegt að það væri kominn tími á þá. Skipti líka um olíu og kíkti á 2 kerti sem voru fín (ljósgrá og þurr, 15000 km síðan var skipt). Setti spíssahreinsi í tankinn, og fer aftur Þá mælist 0,49 og 0,85 og þar með endurskoðun aftur. Talaði við fróða menn sem segja að líklegast sé hvarfinn að gefa sig, nýr kútur er víst álíka dýr og bíllinn ![]() Er einhver önnur skýring? Mér eyðslan líka of mikil ca. 4 l of mikil eða um 19-20 innanbæjar, ekki skýrir hvarfinn það? Annað: Skoðaði soggreinina, allar slöngur líta vel út og enginn sýnilegur leki. Tók samt ekkert í sundur. í olíulokinu er mikill raki og smá gul drulla, líka talsverð gul drulla í öndunarslöngunni framan á ventlalokinu, ef ég blæs í slönguna heyrist eins og vatnsgutl einhverstaðar undir soggreininni. Er heddpakkning að gefa sig? Hann er samt ekkert að hreyfa vatnið mikið, hef þurft að bæta á ca. 0,4l á 7 mánuðum. Reykir heldur ekki mikið. Loftsían er nýleg ca. 7.000 km. mér finnst hljóðið hafa breyst, meir púst hljóð. Hvað er helst að gera. Mér finnst glatað að fara með hann á verkstæði þar sem menn fara í einhverjar happa og glappa aðgerðir þar sem enginn virðist vita hvað sé að. |
Author: | ValliFudd [ Sun 03. May 2009 04:03 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Mér tókst nú að koma 323i í gegn án hvarfakúts. Hann var þarna en hann var tómur. Veit ekki hvort gaurinn sem skoðaði var bara að vera góður við mig eða hvort hann mældist í lagi. Fór bara með hann heitann í skoðun og slapp. En ég hef því miður engin ráð fyrir þig, langaði bara að deila þessu, gæti verið Thuleinn sem ég var að drekka ![]() |
Author: | Danni [ Sun 03. May 2009 13:01 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Ætti kosta svona mesta lagi 60þús að fá BJB til að skipta um hvarfa í bílnum. Þeir skiptu um hvarfana öðru megin í 540 hjá mér og það voru tveir, kostaði 55þús og þetta var gert á þessu ári. |
Author: | gstuning [ Sun 03. May 2009 13:11 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Breyting á CO megnun í svona nýlegum bíl getur verið þónokkrir hlutir. Helsta fyrir þig væri að láta lesa úr honum í tölvunni hjá B&L. Annars hækkar CO mengun er mixtúran verður ríkari. Í raun ætti tölvan þín að sjá um þetta frekar létt enn það er þá eitthvað sem er að trufla. Svo sem hvarfinn, slappur lekandi spíssi. rangur kveikjutími. Ég fór með S50B30 í skoðun með akkúrat ekkert púst liggur við hvað þá hvarfa. Þá mældist CO 0%., Bílinn verður að vera heitur og ekki með einhver auka efni í bensíninu svo sem bensínkerfi hreinsir. Annars myndi ég giska á að MAF væri líka að stríða rétt nóg til að trufla stýringuna á bensíni, enn tölvan ætti að lesa af O2 og laga sig að nýjum aðstæðum samt ... |
Author: | Aron Andrew [ Sun 03. May 2009 14:11 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Gul drulla í olíulokinu veit samt ekki á gott... |
Author: | Maltz [ Tue 26. May 2009 22:30 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Setti ný kerti og meira hreinsiefni og fyllti meðð V-power en það breytti engu. CO í hægagangi lækkaði þó 0,2-0,3 en við inngjöf fer slær það uppundir 1,0. Verkstæðismenn hallast helst að því að spíssarnir séu slappir, stykkið af nýjum kostar 37.000 ![]() Er einhver sem getur hreinsað og prófað spíssa? |
Author: | ValliB [ Tue 26. May 2009 23:13 ] |
Post subject: | Re: CO mengun E39 |
Hugsanlegt að hvarfinn sé bara orðinn fullur eftir þetta mikla keyrslu? Algjörlega þess virði að fá BJB til að smíða hvarfa undir þennan bíl ef þú heldur að það sé það sem amar að. 15-20 þúsund borgaði ég fyrir minn, var líka með m52b20. Var mjög ánægður með þá smíði Fá bara bogl til að lesa af, skýt á MAF-inn |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |