bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Neista vandamál.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36839
Page 1 of 1

Author:  Gimmi Bleiki [ Sat 25. Apr 2009 13:08 ]
Post subject:  Neista vandamál.

Góðan daginn spjallverjar, ég er með bmw 316 e36 sedan 94" og ég get bara enganveginn fundið út afhverju hann neistar ekki.

Það kemur straumur alla leið að kveikjuni en skilar sér ekki í hana.

ég veit að áður en ég fékk bílinn í hendurnar var skift um kveikju og veit ég ekki hvort það hefur eitthvað með þetta vandamál að gera.

Endilega komið með uppástungur um hvað ég get gert.

Author:  Gimmi Bleiki [ Sat 25. Apr 2009 17:04 ]
Post subject:  Re: Neista vandamál.

einhver? eitthvað?

Author:  Gimmi Bleiki [ Sat 25. Apr 2009 18:41 ]
Post subject:  Re: Neista vandamál.

gæti verið að þetta væri knástás skynjarinn? semsagt þett lýsir sér þannig að bíllinn fær ekki neista og fær ekki bensín inn á sig.

mér var sagt á erlendu forumi að fara með hann í aflestur og láta reseta tölvuna í honum og setja annan knástás skynjara í.

getur það gengið?


p.s. sorry með hvað ég spyr mikið ég er gamall hondu elskandi sem ákvað að prufa nýtt.

Author:  BMW_Owner [ Sat 25. Apr 2009 18:47 ]
Post subject:  Re: Neista vandamál.

fáðu þér bimma með stærri vél þær bila minnst :roll:

sko,það getur verið sveifarásskynjarinn sé farinn hjá þér hann segir tölvunni hvort að vélin sé að snúast eða ekki....(basicly)
s.s skiptu um hann og ath. líka hvort að kertaþræðirnir séu ónýtir og hvort að kveikjulokið sé rétt sett á og so on og ef þetta gengur ekki þá hendirðu þessari vél og setur 318is eða 6cyl í þetta

Author:  Dóri- [ Sun 26. Apr 2009 03:41 ]
Post subject:  Re: Neista vandamál.

bara renna yfir allt, ef að hann fær rafmagn að háspennukefli en ekkert rafmagn út úr því þá er það háspennukeflið, ef að hann fær rafmagn að kveikjuloki en ekkert út úr því þá er það kveikjulokið/hamar...

svo ef að hann fær hvorki bensín né neista þá er það kannski knastásskynjari eða sveifarásskynjari... það á að vera hægt að viðnámsmæla þá, veit ekki hvaða viðnám á að vera.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/