bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Endurkrómun
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36758
Page 1 of 1

Author:  srr [ Tue 21. Apr 2009 17:10 ]
Post subject:  Endurkrómun

Getur einhver sagt mér hvort það sé einhver í þessu hérna á Íslandi ?

Er þá að spá í framstuðara á E28 í þessu samhengi.
Hann er heill og óbeyglaður en krómið er farið að vera lélegt.

Er einhver hérna sem hefur reynslu af þessu eða veit um slíkt?
Væntanlega er þetta þá sandblástur og krómun upp á nýtt?

Er svona dýrt/dýrara en að kaupa nýjan stuðara?

*edit* Reyndar kom t.d. 535i (sem 520i þá :lol:) hjá mér upprunalega með samlitaða fram og afturstuðara.
Er ódýrara að láta mála þá bara í lit bílsins frekar en að króma ?
Hann er náttúrulega shadowline og ég setti króm fram og afturstuðara á hann því hinir voru svo ljótir af ryði.

Author:  Alpina [ Tue 21. Apr 2009 17:39 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Allavega .. langdýrast að króma :shock:

Author:  O.Johnson [ Tue 21. Apr 2009 18:02 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Þú getur prófað að tala við Plasttækni á Viðarhöfða 2 s.4459474

Hann er að mála með svona krómmálningu

Sama og þetta stöff

Image

Author:  srr [ Wed 22. Apr 2009 16:23 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Ætli það sé ekki flottast að hafa þetta eins og hann kom original,,, semsagt með samlitaða fram og afturstuðara.
Það á hvort eð er eftir að mála Zender svuntuna að aftan líka ;)

Author:  Saxi [ Wed 22. Apr 2009 16:57 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Væri ekki reynandi að spyrja þá hjá fornbílaklúbbnum eða kvartmíluspjallinu út í þetta? (ert kannski búinn að því) Mér dettur líka Steini í svissinum í hug. Nógu mikið er nú af nýju og fínu krómi á þeim bænum.

Gæti trúað að hér inni séu aðallega menn sem eru orðnir fullnuma í að fjarlægja króm :)

kv.
Egill

Author:  arnibjorn [ Wed 22. Apr 2009 18:35 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Af hverju í ósköpunum ætti maður að vilja króma eitthvað?? :lol:

Author:  gstuning [ Wed 22. Apr 2009 18:47 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Samlita , ekkert króm,
í versta falli póly "króm"

Author:  Alpina [ Wed 22. Apr 2009 18:48 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Póly króm :shock: :shock:

hvað er það

Author:  gstuning [ Wed 22. Apr 2009 18:53 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Það er sama og plasthúðun nema að
þetta er fyrst húðað og bakað með plasti sem lookar svo næstum eins og króm,
svo er sett glær plast glæra sem er bökuð yfir

Author:  Alpina [ Wed 22. Apr 2009 20:28 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

gstuning wrote:
Það er sama og plasthúðun nema að
þetta er fyrst húðað og bakað með plasti sem lookar svo næstum eins og króm,
svo er sett glær plast glæra sem er bökuð yfir



:shock:

ok

er þetta í boði hérlendis

Author:  Djofullinn [ Wed 22. Apr 2009 20:47 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

Klárlega mála draslið 8)

Author:  ///MR HUNG [ Wed 22. Apr 2009 23:34 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

O.Johnson wrote:
Þú getur prófað að tala við Plasttækni á Viðarhöfða 2 s.4459474

Hann er að mála með svona krómmálningu

Sama og þetta stöff

Image

Jááá nei :lol:

Hann proppe í kópavogi er krómarinn.

Author:  Alpina [ Thu 23. Apr 2009 08:27 ]
Post subject:  Re: Endurkrómun

///MR HUNG wrote:

Hann proppe í kópavogi er krómarinn.


Flinkur gaur ?? ,, ef svo . Er þetta €€€€€€€€

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/