bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
olíuhitamælir í m50b25 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36751 |
Page 1 of 1 |
Author: | Zed III [ Tue 21. Apr 2009 10:39 ] |
Post subject: | olíuhitamælir í m50b25 |
daginn bræður, hefur einhver hér smellt olíuhitamæli í m50 vélina sína ? Ég var að breyta mælaborðinu mínu þar sem ég setti analog klukku og olíuhitamæli. Ég er kominn með skynjarann (1/2 tomma að stærð) en þarf að koma honum fyrir í vélinni. Er sniðugt að bora þetta og snitta í pönnuna eða eru kannski einhver plögg fyrir þetta á vélinni sem mætti nota? edit, önnur útfærsla sem ég sá á netinu er að koma þessu fyrir í húsinu þar sem olíusían er staðsett. |
Author: | Zed III [ Wed 22. Apr 2009 21:51 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
Ég átti ekki von á miklu responsi þar sem þetta er ekki standard vandamál, en eitt sem ég gæti fengið hjálp með. Á bakinu á displayinu eru 3 plögg; plús, mínus og S. Ég gerði ráð fyrir að þetta S sé það sem fer í sendinn og tengdi þetta þannig. Ég prufaði svo að setja sendinn (sem hefur þetta eina plögg í sig) í heitt vatn til að sjá hvort mælirinn færi af stað en ekkert gerðist. Er þetta þar sem sendirinn var ekki skrúfaður í vélina og því ekki með neitt jarðsamband þar sem hann hékk þarna í vatninu ? Ef ég myndi prufa að bæta við jarðtengingu á sendinn ætti þetta ekki að fara af stað? |
Author: | ///M [ Wed 22. Apr 2009 21:55 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
Veit ekki hvernig olíu húsið er á m50 en á s50b32 er olíuhitinn í sér gati hliðina á olíuþrýsingsmælinum, einnig eru tvö auka göt sem er lokað með bolta sem hægt er að nota... |
Author: | Zed III [ Wed 22. Apr 2009 22:01 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
hvar er olíuþrýstingsmælirinn staðsettur á s50 ? |
Author: | ///M [ Wed 22. Apr 2009 22:05 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
neðarlega á olíuhúsinu |
Author: | Zed III [ Wed 22. Apr 2009 22:07 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
nevermind, fann þetta á m50. Er semsagt staðsett í húsinu þar sem filterinn er. http://www.realoem.com/bmw/diagrams/a/v/5.png spurning hvort það séu auka göt. Takk ///M |
Author: | gunnar [ Wed 22. Apr 2009 23:27 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
Þar sem ég er nú með svipaðan mótor og þú, hvað telur þú þig vera græða á því að geta séð olíuhitann? Er einhver hætta á því að olíuhiti í N/A mótor verði eitthvað óverulegur og því þurfi sérstakan mæli fyrir það? |
Author: | ///M [ Thu 23. Apr 2009 04:38 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
gunnar wrote: Þar sem ég er nú með svipaðan mótor og þú, hvað telur þú þig vera græða á því að geta séð olíuhitann? Er einhver hætta á því að olíuhiti í N/A mótor verði eitthvað óverulegur og því þurfi sérstakan mæli fyrir það? Gott að vita hvenær má stappa dósina... vatnshiti er tildæmis löngu löngu kominn í eðlilegt horf áður en olíuhiti er kominn... Einnig er gott að vita hvað er í gangi ef bíllinn er notaður á braut, ef ég man rétt er til dæmis enginn olíukæli í m50 |
Author: | Alpina [ Thu 23. Apr 2009 07:59 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
///M wrote: Gott að vita hvenær má stappa dósina... vatnshiti er tildæmis löngu löngu kominn í eðlilegt horf áður en olíuhiti er kominn... Einnig er gott að vita hvað er í gangi ef bíllinn er notaður á braut, Þetta er akkúrat það sem skilur á milli S-mótor og M-mótor hjá BMW ,, (((((( ath,, fyrir þá sem ekki vita þá er S mótor í ///M-bílum ((M3.. M5 M6 (X5 4.6 +4. ![]() Allir semirace vélar frá BMW eru ekki með vacum-eyðslumæli ,, heldur olíuhitamæli í staðinn ((menn eru ekki að kaupa M-bíl og velta sér svo upp úr eyðslunni ))) Það er mjög mikilvægt að hafa olíuhitamæli í brautar-akstri,, þar sem átök vélarinnar eru óeðlilega mikil vs venjuleg notkun,, meðalhraði í braut getur verið miklu minni en þjóðvega keyrsla,, en hitinn sem myndast við stöðuga inngjöf og þessháttar vs mikil bremsuátök eru gríðarlegur,, olíuhitinn á CABRIO hefur farið í 110 á slaufunni,,,,, vatnshitinn þá var 105,,,,,,, 30° lofthiti,, en ég er með crap viftu,, stefni á að kaupa ALVÖRU ,, núna Ekki er gott að láta olíuna fara yfir 120° á BT við háhraða er olíuhitinn kannski 87°,,,,, svo er allt staðið kannski í 300 þá er 100° á núll-einni á digital mælinum.. BT er að öðrum ólöstuðum sá mótor 6 cyl sem ég hef keyrt sem er fljótastur að hitna,,,,,, frá kaldræsingu Fyrir þá sem þekkja til á slaufunni....... ef ég læt húddið pop-up á BT og blæjunni frá Gantry (( þar sem official brautin endar á Touristfahren )) þá lækkar olíuhitinn um 10°á BT ![]() ok þetta var smá OFF TOPIC ![]() |
Author: | Zed III [ Thu 23. Apr 2009 09:22 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
takk fyrir flott innlegg, Ástæðan fyrir því að ég er að setja þetta í bílinn hjá mér er reyndar ekki mjög djúp. Klukkan sem ég var með í bílnum var orðin svo léleg að ég sá ekki á hana í dagsbirtu. Mig langaði í analog klukku eins og er í m bílnum og fékk hana á ebay. Með klukkuni fylgdi með olíuhitamælir sem var henntugt því hann passaði einmitt vel við hliðini á klukkuni á nýja staðnum, en til að koma klukkuni fyrir þurfti ég að færa takkana sem stýra sætishitaranum. Það er svo ómögulegt að hafa eitthvað í bílnum sem virkar ekki 100% og því ætla ég að tengja mælinn svo hann sé ekki bara uppá look (plús maður gerir allt til að læra meira). Ef ég hefði fengið útihitamæli hefði ég tengt hann á sömu forsendum. btw, nýja setupið lookar helvíti vel og minnir vel á m setupið fyrir mæla. Ég set myndir í þráðinn minn þegar þetta er komið í lag. |
Author: | Alpina [ Thu 23. Apr 2009 09:29 ] |
Post subject: | Re: olíuhitamælir í m50b25 |
BARA töff modd |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |