bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36633
Page 1 of 4

Author:  fart [ Fri 17. Apr 2009 10:48 ]
Post subject:  Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Hugsanlega að einhver geti komið með stjörnulausn á þessu hjá mér.

Þetta byrjaði um daginn, tikk tikk í klúnk klúnk. Tikk þegar maður keyrir sem eykst með hraða og verður háværara, og breytist í nett klúnk klúnk þegar maður slær af.

Hljóðið er nær vinstra afturdekki og virðist magnast út þar. Vinstri afturlega er ný og breytti engu um hljóðið, ég hélt fyrst að þetta væri legan. Öxullinn virðist vera í lagi og það fylgir þessu enginn víbringur, heldur bara þetta leiðinlega hljóð.

Það furðulega er að um daginn hætti hljoðið tímabundið, en kom svo aftur.

ANY Ideas snillingar?

Author:  Axel Jóhann [ Fri 17. Apr 2009 11:10 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Myndi allavega prufa að taka lokið af drifinu og skoða það, gæti vel verið að legurnar þar séu að yfirgefa svæðið.

Author:  Geirinn [ Fri 17. Apr 2009 17:57 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Ok, stjörnulausn eða ekki, en ertu alveg 100% að þetta sé ekki drifskaptsupphengjan ?

Author:  Angelic0- [ Sat 18. Apr 2009 14:36 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Geirinn wrote:
Ok, stjörnulausn eða ekki, en ertu alveg 100% að þetta sé ekki drifskaptsupphengjan ?


Akkúrat það sem að ég ætlaði að veðja á :lol:

Author:  Steinieini [ Sat 18. Apr 2009 16:35 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Búinn að ath handbremsuna ? getur ath hvort hljóðið breytist við það að taka í hana lauslega á ferð. Lenti í því í E30 að hún var að valda furðulegum hljóðum sem leiddu um allan bíl..

Author:  fart [ Sun 19. Apr 2009 19:00 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Mig grunar drifskaftið eða upphengju

Author:  fart [ Sun 19. Apr 2009 19:42 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

það kemur sveitt klúnk þegar ég bakka

Author:  Djofullinn [ Sun 19. Apr 2009 19:45 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Upphengja eða driffóðring

Author:  iar [ Sun 19. Apr 2009 19:57 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

fart wrote:
það kemur sveitt klúnk þegar ég bakka


Þetta hljómar svipað og þegar drifið var laust hjá mér að framan (ekki í "eyrunum" að aftan). Þó kom einmitt "sveitt klúnk" :lol: líka þegar ég var í 1. gír og sló af gjöfinni.

Author:  fart [ Sun 19. Apr 2009 20:00 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

Image

Author:  fart [ Sun 19. Apr 2009 20:01 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

númer 6?

Author:  Alpina [ Sun 19. Apr 2009 20:12 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

fart wrote:
númer 6?


Er upphengjan

Author:  Hannes92 [ Sun 19. Apr 2009 21:35 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

nenni ekki að búa til nýan þráð því þetta er svipað vandamál

vinur minn á BMW 325i E36 og alltaf þegar hann gefur mikið í þá heyrist svona leiðinlegt hljóð eins og hann lýsir en hef ekki tekið eftir þessu klúnki sem kemur þegar hann sær af hvað haldið þið að þetta sé

einn búinn að seigja mér að þetta sé upphengjan

Author:  Dóri- [ Sun 19. Apr 2009 22:44 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

fart wrote:
númer 6?


myndi skipta um guibo púðann líka, ég á hann til í E36 m3 ef að þú veist um ferð frá is til lux :)
OEM stuff

Author:  DABBI SIG [ Mon 20. Apr 2009 01:10 ]
Post subject:  Re: Drifóhljóðsvesen E36 25%LSD

iar wrote:
fart wrote:
það kemur sveitt klúnk þegar ég bakka


Þetta hljómar svipað og þegar drifið var laust hjá mér að framan (ekki í "eyrunum" að aftan). Þó kom einmitt "sveitt klúnk" :lol: líka þegar ég var í 1. gír og sló af gjöfinni.


Laust að framan?
Meinarru þá að sjálf upphengjan hafi verið að gefa sig?

Einnig ef að það er svona víbríngs hljóð eða gnauður sem heyrist aftan úr bíl, gæti það þá verið drifskaptsupphengjan/legan í henni, eða gæti það verið hjólalega?

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/