bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Rafmagn í E30 :@ https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36555 |
Page 1 of 1 |
Author: | T-bone [ Tue 14. Apr 2009 23:22 ] |
Post subject: | Rafmagn í E30 :@ |
Jæja, örugglega allir búnir að fá nóg af spurningum um E30 rafmagni, en here it goes... Ég lenti í því áðan að Snúningshraðamælirinn, hitamælirinn, bensínmælirinn, bakkljósin og miðstöðin duttu út hjá mér. Ég er mikið búinn að pæla í því hvað í andskotanum þetta geti verið. Lenti í því um daginn að það var lélegur skórinn á jörðinni á startaranum, og þegar hún datt út þá virkuðu ekki rúðurnar og miðstöðin. Búinn að laga það og ekkert mál. En núna virka rúðurnar alveg en miðstöðin virkar ekki ásamt náttúrulega hinu öllu. veit ekki hvort að þetta segir ykkur eitthvað um hvað þetta gæti verið, en ég vona að einhver vitið þetta. Það væri æðislegt. Kveðja: Anton Örn |
Author: | srr [ Tue 14. Apr 2009 23:23 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Öll öryggi í lagi? |
Author: | T-bone [ Tue 14. Apr 2009 23:30 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
srr wrote: Öll öryggi í lagi? Já ég held það, og finnst ekki líklegt að þetta sé öryggi því að þegar ég set bílinn í gang, þá blæs miðstöðin meðan ég er að starta en deyr svo, og snúningshraðamælirinn virkar í svona 2 sek eftir að hann er kominn í gang, en svo fer hann alveg niður:/ Gleymdi bara að minnast á þetta áðan. |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 14. Apr 2009 23:38 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Leiðir saman einhverstaðar. |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Tue 14. Apr 2009 23:42 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Skoða allar jarðtengingar. Líklegt að það sé jarðtenging sem er að stríða þér. |
Author: | IvanAnders [ Tue 14. Apr 2009 23:57 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Jónki 320i ´84 wrote: Skoða allar jarðtengingar. Líklegt að það sé jarðtenging sem er að stríða þér. Hvað er annars að frétta af 320i ´84? |
Author: | T-bone [ Wed 15. Apr 2009 14:37 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
einn sem eg spurdi ut i tetta sagdi mer ad tetta gæti verid prentplatan i mælabordinu. Er tad möguleiki? |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Thu 16. Apr 2009 16:03 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
pacifica wrote: einn sem eg spurdi ut i tetta sagdi mer ad tetta gæti verid prentplatan i mælabordinu. Er tad möguleiki? Ekki víst miðstöðin er að detta út hjá þér. Hún tengist ekkert prentplötunni í mælaborðinu. Birgir_Sig var með svipað vandamál og það var jarðtenging sem var að stríða honum. |
Author: | T-bone [ Thu 16. Apr 2009 16:36 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Jónki 320i ´84 wrote: pacifica wrote: einn sem eg spurdi ut i tetta sagdi mer ad tetta gæti verid prentplatan i mælabordinu. Er tad möguleiki? Ekki víst miðstöðin er að detta út hjá þér. Hún tengist ekkert prentplötunni í mælaborðinu. Birgir_Sig var með svipað vandamál og það var jarðtenging sem var að stríða honum. Nú? Þá veistu meira en hann. Hann er ekki búinn að finna útúr þessu hjá sér... |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Thu 16. Apr 2009 18:34 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Nú ég hélt að hann hefði verið búinn að finna útur þessu. En þetta lýsir sér alveg svakalega sem sambandsleysi í jarðtengingu. Ég myndi byrja á því að fara yfir jarðtengingarnar fyrir þessa hluti. |
Author: | T-bone [ Thu 16. Apr 2009 18:38 ] |
Post subject: | Re: Rafmagn í E30 :@ |
Jónki 320i ´84 wrote: Nú ég hélt að hann hefði verið búinn að finna útur þessu. En þetta lýsir sér alveg svakalega sem sambandsleysi í jarðtengingu. Ég myndi byrja á því að fara yfir jarðtengingarnar fyrir þessa hluti. Olræt. ég gerið það. Nonni Bras í TB sagði samt við mig að honum fyndist líklegt að þetta væri mælaborðið... En það er búið að skipta um það í bílnum hjá Birgi eftir að þettavarð svona þannig að það er ekkert rosalega líklegt :/ |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |