bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36429 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Sat 11. Apr 2009 22:39 ] |
Post subject: | Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
Sælir. Lenti í því í dag þegar ég ætlaði að leggja af stað að bíllinn var pikkfastur og lyftist og seig bara þegar ég reyndi að keyra fram eða aftur. Virðist semsagt vera fastur í handbremsu (lýsir þetta sér ekki annars þannig?) Svo ætla ég að taka diskana af að aftan og kíkja á þetta þá næ ég disknum ekki af. Er búinn að taka caliperinn og losa diskinn og hann er vel laus og skröltir en ég næ honum samt ekki af höbbnum. Það er semsagt hægt að vagga disknum slatta en ekki snúa en það er eitthvað í disknum sem heldur á móti. Væntanlega af því að handbremsan stendur á sér eða hvað? Eru menn með einhver góð ráð til að ná þessu af? Með von um skjót og góð ráð! ![]() kv. Ingimar |
Author: | JOGA [ Sat 11. Apr 2009 22:48 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
Sæll, Var að vesenast í afturbremsum nýlega. Líklega er kanntur á handbremsuborðunum/disknum sem heldur honum á. Ef þú getur snúið disknum þá ættir þú að geta fundið stillihjólið fyrir handbremsuna og ættir að geta slakað á borðanum á meðan þú nærð disknum af. Hjólinu er snúið með skrúfjárni. Ýtir því í hringi með því að þrýsta skrúfjárninu á "tannhjólið". Hjólið er ca. 25° til hægri frá toppnum bílstjóramegin og til vinstri farþegamegin. Líklegast eina góða leiðin... Gangi þér vel! |
Author: | iar [ Sat 11. Apr 2009 22:51 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
Ætla að tékka á þessu, gæti samt verið vandamál því ég get ekki snúið disknum/höbbnum. ![]() |
Author: | Alpina [ Sat 11. Apr 2009 22:53 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
uakk,,,, þetta er hvimleitt .. við Skúra-Bjarki lentum einmitt í þessu með M5 |
Author: | JOGA [ Sat 11. Apr 2009 22:58 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
Ef þú ert ekki búinn að því prófaðu þá að slaka alveg á handbremsunni inni í bíl og jugga vírunum eitthvað til. Þarf kannski ekki mikið til þess að ná disknum af... Edit: 12mm lykill fyrir stóru skrúfuna og 9mm fyrir litlu ![]() |
Author: | iar [ Sat 11. Apr 2009 23:07 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
Höbbinn sneri ekki rétt til að snúa tannhjólinu og slaka á handbremsunni en diskurinn var nógu laus til að koamst að þessu aftanfrá og losa þannig! ![]() Takk fyrir hintið Joga! ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 11. Apr 2009 23:09 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
iar wrote: Höbbinn sneri ekki rétt til að snúa tannhjólinu og slaka á handbremsunni en diskurinn var nógu laus til að koamst að þessu aftanfrá og losa þannig! ![]() Takk fyrir hintið Joga! ![]() Gaman að geta hjálpað ![]() Þegar þú setur saman aftur mæli ég með því að þú herðir handbremsuna svolítið eða þar til að diskurinn rétt kemst upp á og svo stilla handbremsuna létt í gegn um gatið. Mjög erfitt að stilla þetta í gegnum gatið ef að það er mjög slakt á borðanum... |
Author: | crashed [ Sat 11. Apr 2009 23:26 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
og ef það er einhver kantur komin á bremsudiskinn hjá þér að takka þér slípirokk með sandpabírs skífu og slípa hann till annars verður bara vesenn að ná honum aftur af seina meir samt ekki slípa inná flötinn þar sem bremsuborðarnir eru |
Author: | crashed [ Sat 11. Apr 2009 23:27 ] |
Post subject: | Re: Næ ekki bremsudisk af að aftan (fastur í handbremsu?) |
já og reyna að hreynsa allt ryð og drullu ef það er einhver og smyrja vel svo þetta festist ekki aftur ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |