bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vesen með loftpúðaljós
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36359
Page 1 of 1

Author:  Rusli [ Thu 09. Apr 2009 12:00 ]
Post subject:  Vesen með loftpúðaljós

Ég á BMW 316i E36 og það er alltaf kveikt á loftpúðaljósinu. Hvað í fjáranum gæti verið að? Loftpúðarnir eru enn á sínum stað og hafa aldrei sprúngið út. Allar upplýsingar vel þegnar.

Author:  gardara [ Thu 09. Apr 2009 14:11 ]
Post subject:  Re: Vesen með loftpúðaljós

Margt sem gæti verið að, ég myndi láta lesa af bílnum í tb eða bogl

Author:  Einari [ Thu 09. Apr 2009 14:29 ]
Post subject:  Re: Vesen með loftpúðaljós

Þú verður að láta lesa af honum, því að jafnvel þó að bilunin hafi bara komið fram í eina sekúndu, þá kveikir tölvan ljósið og það slökknar ekkert fyrr en að bilunarmeldingunni er eytt út úr tölvunni með aflestrartölvu. :wink:

Author:  Brútus [ Thu 09. Apr 2009 16:41 ]
Post subject:  Re: Vesen með loftpúðaljós

Ertu búinn að vera að taka eitthvað úr sambandi í sætum undafarið ?
Hjá mér fóru þessi ljós af stað þegar að ég tók sætin úr bílnum.
BogL sögðu mér að það tæki hálftíma að laga þetta og myndi reiknast á verkstæðisverði.
TB löguðu þetta fyrir mig fyrir klink í samanburði við það sem þetta hefði kostað hjá bogL.

Author:  Rusli [ Wed 22. Apr 2009 15:36 ]
Post subject:  Re: Vesen með loftpúðaljós

hmm ja það gæti verið eitthvað farið í sætunum úr sambandi.
takk fyrir þetta :D

Author:  ///M [ Wed 22. Apr 2009 15:40 ]
Post subject:  Re: Vesen með loftpúðaljós

Kostar minnir mig rúman 3000 kall að láta tb lesa af bílnum og núlla ljós. Þeir eru samt ekki með jafn nákvæma græju og bogl.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/