bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36332 |
Page 1 of 2 |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 00:20 ] |
Post subject: | Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Ég ætlaði aldeilis að skemmta mér áðan við það að nýta slitin dekk í spólerí en það er eitthvað sem er að klikka í bílnum hjá mér. Dettur sjálfum í hug að þetta gæti verið drif eða kúpling. Það kemur gífurlega vond lykt af bílnum að utan, gæti verið verulega sterk kúplings steikingar lykt en finnst þó ekki innan úr bílnum og mér finnst hún vera aftarlega, jafnvel í kringum púst. Bíllinn er hrikalega máttlaus, fæ ekkert tog í fyrsta gír fyrren ég er kominn yfir 2000rpm og þegar ég gaf hressielga af stað þá kláruðust gírarnir hver eftir annann en ég rétt lak af stað, s.s. eins og maður sé ekki alveg búinn að kúpla. Og svo skröltir eitthvað aftarlega þegar ég keyri. Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að? |
Author: | GunniT [ Wed 08. Apr 2009 00:31 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Gæti verið að öxull sé farinn hjá þér og þú sért að lúsast áfram á læsinguni?? |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 00:39 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Gæti vel verið, hvernig get ég gengið úr skugga með það? |
Author: | Angelic0- [ Wed 08. Apr 2009 02:58 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Þetta er tannhjólalæsing, ekki satt ![]() Finnst líklegra að kúplingin sé game over... lykt og gírarnir klárast fljótt ![]() En hitt er líklegra á diskalæsingu, en OBX læsing er tannhjólalæsing og myndi þá bara læsa og þú gætir keyrt 100% einsog á soðnu drifi... NEMA bíllinn vindur fáránlega upp á sig ![]() |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 08:05 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Nei djö, eru kúplingsskipti ekki stór reikningur? Maður hefði annars haldið að þetta drasl myndi þola smá spól ![]() |
Author: | Einarsss [ Wed 08. Apr 2009 08:12 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
varstu að leika þér að clutch droppa til að ná honum á hlið? þetta hljómar eins og kúpling fyrir mér, þú hefur sennilega verið með mjög slappa kúplingu fyrir þannig að nú er tækifærið á að fá sér eitthvað aðeins betra en oem ![]() |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 08:20 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
einarsss wrote: varstu að leika þér að clutch droppa til að ná honum á hlið? Jebb það var það sem ég reyndi eeeen það gekk ekki, það fór strax eitthvað að klikka. Er annars ekki ráðlagt að clutch droppa? (spyr drift n00binn) Quote: þetta hljómar eins og kúpling fyrir mér, þú hefur sennilega verið með mjög slappa kúplingu fyrir þannig að nú er tækifærið á að fá sér eitthvað aðeins betra en oem ![]() Hvað er í boði varðandi það? Og er þetta ekki rándýrt helvíti? ![]() |
Author: | Einarsss [ Wed 08. Apr 2009 08:26 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
gardara wrote: einarsss wrote: varstu að leika þér að clutch droppa til að ná honum á hlið? Jebb það var það sem ég reyndi eeeen það gekk ekki, það fór strax eitthvað að klikka. Er annars ekki ráðlagt að clutch droppa? (spyr drift n00binn) Quote: þetta hljómar eins og kúpling fyrir mér, þú hefur sennilega verið með mjög slappa kúplingu fyrir þannig að nú er tækifærið á að fá sér eitthvað aðeins betra en oem ![]() Hvað er í boði varðandi það? Og er þetta ekki rándýrt helvíti? ![]() fer ekkert ógurlega vel með kúpplinguna að gera það. Skoðaðu bara einhverjar erlendar e36 tuning síður og gáðu hvað er í boði, annars á örugglega fálkinn til pressu og kúplingu handa þér .. veit ekki hvað svona dót kostar nýtt en ímynda mér 30-40k. Ættu að vera einhverjir aðrir hérna sem geta sagt þér betur frá því en ég |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 08:32 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Okeibb, geri það. Er annars einhver leið fyri mig til þess að ganga úr skugga með að þetta sé kúplingin en ekki eitthvað annað? Væri pínu fúlt að punga út fyrir kúplingu en svo væri það eitthvað annað sem klikkaði.... |
Author: | Einarsss [ Wed 08. Apr 2009 08:34 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
þú basicly finnur að kúpling sé farin... segjum að þú sért í 3000 rpm í öðrum gír og gefur allt í botn. Ef að mótorinn fer uppá snúning og hraðinn eykst lítið/ekkert þá er kúplingin að slippa |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 08:38 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
einarsss wrote: þú basicly finnur að kúpling sé farin... segjum að þú sért í 3000 rpm í öðrum gír og gefur allt í botn. Ef að mótorinn fer uppá snúning og hraðinn eykst lítið/ekkert þá er kúplingin að slippa Hljómar akkúrat eins og mitt vandamál, gerist þó reyndar ekki alltaf. Og er það þá kúplingin sem orsakar þetta skrölt aftan úr bílnum? Er mér annars óhætt að keyra bílinn í þessu ástandi? |
Author: | Einarsss [ Wed 08. Apr 2009 08:42 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
ekki hugmynd |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 09:09 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Er rétt aðeins búinn að vera að kíkja á kúplingar erlendis og sé sumsstaðar pakka með clutch og flywheel og nú spyr ég eins og vitleysingur, hvað er flywheel og er það eitthvað sem væri sniðugt að skipta út í leiðinni? |
Author: | Angelic0- [ Wed 08. Apr 2009 12:53 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
gardara wrote: Er rétt aðeins búinn að vera að kíkja á kúplingar erlendis og sé sumsstaðar pakka með clutch og flywheel og nú spyr ég eins og vitleysingur, hvað er flywheel og er það eitthvað sem væri sniðugt að skipta út í leiðinni? Léttara swinghjól gefur þér "throttle response" og bíllinn verður léttari bæði upp og niður á snúning, thus getur verið fljótari á milli gíra án þess að eiga á hættu að vera mikið að böðla kassanum þínum... En ég tæki aftermarket kúplingu, OEM heldur ekki lengi í svona æfingum.... Skrölt aftan úr bílnum, ekki hljómar það vel, gætir hafa brotið eitthvað þar... En m.v. lýsingarnar ertu allavega búinn með kuplinguna, þegar að það er lítið eftir af kúplingunni þá snuðar hún strax og hún hitnar smá... |
Author: | gardara [ Wed 08. Apr 2009 13:12 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað klikkað í e36 eftir spólæfingar |
Þetta er nú meira vesenið, ég sem náði ekki að láta bílinn nema rétt aðeins fara á hlið ![]() Annars hef ég verið að kíkja á á einhverjar kúplingar og flywheel úti, hef samt ekki hugmynd hvað er gott og hvað ekki. Kannski er flest allt aftermarket betra en oem.... Hvað merkir þetta Stage 1, Stage 3 osfrv? Þetta hér er á viðráðanlegum prís og hljómar ekki svo illa, en þá reyndar hljómar flest á ebay frekar vel, þótt það sé það ekki endilega ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |