bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=36134
Page 1 of 2

Author:  Solvirafn [ Tue 31. Mar 2009 21:26 ]
Post subject:  BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Sælir

BMWinn minn er búnn að vera að hegða sér skringilega í mjög langann tíma en eg hef ekkert gert í því fyrr en núna

Vatnið hverfur af honum og eg hef ekki hugmynd hvað er að. Ég er þó búinn að reyna hitt og þetta og gera prufur.

Það sem eg er búinn að gera og prufa:

Ég er búinn að skipta um vatnskassa og vatnslás
það lekur ekki neinsstaðar undan honum og engin bleyta ofani húddinu
ég tel mig vera búinn að útiloka að þetta sé headpackningin, á reyndar eftir að láta mæla þjöppunina á honum
það kema úr pústinu né hvítur reykur
það er stundum pínu hreyfing á hitamælinum í mælaborðinu en er þó alltaf fyrir miðju

ég þarf að setja vatn á hann á 2-4 daga fresti, frá 1L uppí næstum 2L og eg blæs alltaf lofinu utaf kassanum eftir að eg bæti vatni s.s. lýsir sér eins og það komst loft inna hann, annars ekki viss hvernig það virkar

Ef einhver getur hjálpað væri það bara awsome ;)

kv. Sölvi Rafn

Image

Author:  Axel Jóhann [ Tue 31. Mar 2009 21:57 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Villtu selja hann? :D

Author:  Solvirafn [ Tue 31. Mar 2009 22:03 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

hvaða verð ertu með í huga? ;)

Author:  Axel Jóhann [ Tue 31. Mar 2009 22:04 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

viewtopic.php?f=13&t=36125 :D

Author:  Solvirafn [ Tue 31. Mar 2009 22:08 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

hehe neeei ekki alveg til í þetta tilboð.

takk samt ;) gangi þer vel

Author:  demi [ Tue 31. Mar 2009 22:17 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

skiptiru um tappa þegar þú settir nýjan vatnskassa í hann ?

Author:  Solvirafn [ Tue 31. Mar 2009 22:25 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

ef þú ert að tala um á vatnskassanum þá nei, orginal tappar á honum

ertu kanski að tala um eitthvað annað? :)

Author:  demi [ Tue 31. Mar 2009 23:41 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Solvirafn wrote:
ef þú ert að tala um á vatnskassanum þá nei, orginal tappar á honum

ertu kanski að tala um eitthvað annað? :)

prufaðu að setja nýjan tappa á vatnskassan, hef heyrt menn nefna það að lélegur tappi geti valdið leiðindum.

Author:  saemi [ Tue 31. Mar 2009 23:48 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Ef það lekur ekki undan honum þá er þetta að fara inn í vélina!

Það getur ekki annað verið.

Author:  Angelic0- [ Wed 01. Apr 2009 00:15 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

saemi wrote:
Ef það lekur ekki undan honum þá er þetta að fara inn í vélina!

Það getur ekki annað verið.

Ef að gatið er nógu lítið þá getur þetta skilað sér í gufu...

EÐA lekið út um hitaelement...

I have proven SÆMI wrong :!:

Author:  saemi [ Wed 01. Apr 2009 00:28 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Angelic0- wrote:
saemi wrote:
Ef það lekur ekki undan honum þá er þetta að fara inn í vélina!

Það getur ekki annað verið.

Ef að gatið er nógu lítið þá getur þetta skilað sér í gufu...

EÐA lekið út um hitaelement...

I have proven SÆMI wrong :!:

:squint:

Þetta er 1-2 lítrar á 2-4 daga fresti. Gufa minn r*ss.

Author:  Angelic0- [ Wed 01. Apr 2009 00:34 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

saemi wrote:
Angelic0- wrote:
saemi wrote:
Ef það lekur ekki undan honum þá er þetta að fara inn í vélina!

Það getur ekki annað verið.

Ef að gatið er nógu lítið þá getur þetta skilað sér í gufu...

EÐA lekið út um hitaelement...

I have proven SÆMI wrong :!:

:squint:

Þetta er 1-2 lítrar á 2-4 daga fresti. Gufa minn r*ss.

Hitaelementið samt, flaskaðir á því :lol:

Author:  birkire [ Wed 01. Apr 2009 02:13 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Jaaaa..

virkar miðstöðin eðlilega ? engin bleyta í teppinu innan í bílnum eða neitt ?

Author:  saemi [ Wed 01. Apr 2009 10:34 ]
Post subject:  Re: BMW 525i E34 95' Vatnsvandamál

Angelic0- wrote:

Hitaelementið samt, flaskaðir á því :lol:

Það má vel vera að ég sé að flaska, en þessar uppástungur þínar geta engan veginn gengið upp. Ég hef átt og keyrt þá nokkra með bilað hitaelement og það er ekki séns að það leki svona mikið með því. Ekki nema það séu brotin rörin og fossi inn í bílinn. Í öllum tilvikum sem ég hef lent í þessu þarf að bæta kannski líter á 1-2 mánaða fresti á bílinn þegar hitaelementið lekur.

Author:  Angelic0- [ Wed 01. Apr 2009 14:15 ]

Ég átti nú E34 með hitaelementsvandamál... og þá var það alveg 1-2 lítrar á viku...

einnig var ég á 316 compact sem að var pínulítið gat á slöngu sem að var við hvalbakinn, aldrei sást vatn undir bílnum... en ég tók eftir því þegar að gatið stækkaði að það var farið að gufa bakvið hvalbakinn og það gekk illa að loft-tæma...

;)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/