bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Þokuljósa-relay gáta
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35988
Page 1 of 1

Author:  Zed III [ Wed 25. Mar 2009 19:21 ]
Post subject:  Þokuljósa-relay gáta

ég er með þokuljós á bílnum sem loga glatt þegar ég set samskonar relay og er í aðal ljósunum á bílnum (ljósgrænt) en ég get ekki slökkt á þeim með þokuljósatakkanum í og það logar á ljósinu fyrir fremri þokuljós í mælaborðinu.

Þegar ég set það sem á að vera rétta relayið (orange) í þá get ég ekki kveikt á þokuljósunum.

Ég veit að einn vír sem stingst upp í þetta tiltekna relay slot í sjálfu öryggisboxinu grillaðist og er ekki í sambandi en mér dettur ekki nein augljós leið til að koma honum aftur í samband (hann er í sundur alveg í endanum sem relayinu er plöggað í samband).

er eina skýringin að það sé þessi vír sem sé að fokka í mér eða gæti þetta verið takkinn sjálfur ?

Ef vírinn er eini möguleikinn í þessu fokku þá verð ég að finna leið til að lóða djöful aftur á réttan stað.

Author:  Lindemann [ Wed 25. Mar 2009 19:30 ]
Post subject:  Re: Þokuljósa-relay gáta

ef það er einn vírinn í relayið í sundur, þá eru yfirgnæfandi líkur á því að það sé vandamálið...... relay notar bara einn stöðugan straum inní sig, stýristraum, jörð og neytanda.....ef eitthvað af þessu vantar, þá virkar það einfaldlega ekki.

Author:  Zed III [ Wed 25. Mar 2009 19:39 ]
Post subject:  Re: Þokuljósa-relay gáta

takk fyrir svarið.

meikar þá sens að þetta logi stanslaust með hinu relay-inu

og ég skipti um relay þá gæti ein af þessum rásum farið í gegnum aðra leið og þá gætu þokuljósin logað stanslaust ?

Author:  Lindemann [ Wed 25. Mar 2009 20:35 ]
Post subject:  Re: Þokuljósa-relay gáta

já önnur gerð af relayi getur haft aðra uppröðun á pinnunum........

Author:  Zed III [ Thu 26. Mar 2009 06:07 ]
Post subject:  Re: Þokuljósa-relay gáta

cheers Lindemann

Þá er ekkert annað að gera en að koma þessu í lag.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/