bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

rafmagnslaus 540i
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35959
Page 1 of 1

Author:  egill0rn [ Tue 24. Mar 2009 16:49 ]
Post subject:  rafmagnslaus 540i

Það er bassabox i bílnum og ég þarf alltaf að slökkva á magnaranum sjálfur áður en ég fer úr bínum, en ég gleymi því stundum og ef ég skil magnarar eftir í gangi yfir nótt verður bíllinn rafmagnslaus
(sem mér finnst mjög skrítið því ég var með þetta alveg eins í gamla bílnum mínum og það var allt í lagi að hafa kveikt á magnaranum í nokkra daga, ég held bara að rafgeimirinn er orðinn lélegur)
en þegar þetta gerðist þá hlóð ég bara bílinn með hleðsutæki (tengdi bara í vélina)
en um helgina gleymdi ég að slökkva á magnaranum og svo 2 dögum seinna var bíllinn alveg rafmagnslaus, það koma eingin ljós eða neitt og ef ég set hleðslutækið á vélinu kemur að battery is too low :?

hvað er best að gera ?
fá start frá örum bíl ?
ég vil helst sleppa við að þurfa að kaupa nýjan rafgeymi

Author:  Einsii [ Tue 24. Mar 2009 17:15 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

Byrjaðu allavega á að tengja magnarann rétt.

Svo held ég að það sé betra að splæsa fljótlega í nýjann geymi heldur en að verða rafmagnslaus einhverstaðar útá víðavangi.

Author:  Alpina [ Tue 24. Mar 2009 17:28 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

Alveg deginum ljósara ,, að geymirinn er slappur

OG ekkert óeðlilegt við það

ATH,,,, bíllinn hjá þér er einnig fullur af allskyns rafgizmoi sem tekur mikinn straum

Author:  Lindemann [ Tue 24. Mar 2009 18:23 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

aðal vandamálið er náttúrulega að magnarinn er vitlaust tengdur.... það eyðileggur geyminn frekar fljótt að hafa neytanda á kerfinu sem er alltaf að hálf tæma útaf honum.

Þú kemur bílnum ekki í gang með hleðslutækinu afþví geymirinn er svo tómur að hann þarf boost til að koma bílnum í gang, gefur honum bara start.
Svo skaltu tengja magnarann rétt og kaupa nýjan geymi(ef þú ert tæpur á pening, athugaðu þá hvort það vanti vatn á geyminn og svo skaltu hlaða hann vel....þá gæti hann verið nothæfur eitthvað áfram)

Author:  egill0rn [ Tue 24. Mar 2009 19:10 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

magnarinn er ekkert vitlaust tengdur ég vil bara getað ráðið hvort ég hef bassaboxið á eða ekki, er með takka frammí til að slökkva og kveikja á honum.

en vitiði hversu marga ampera kapla ég þarf ?
þarf ekki svona stór vél frekar svera kapla

ég ætla að kaupa nýjan rafgeymi fyrir sumarið á bara ekki efni á því núna

Author:  JonFreyr [ Tue 24. Mar 2009 19:29 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

egill0rn wrote:
magnarinn er ekkert vitlaust tengdur ég vil bara getað ráðið hvort ég hef bassaboxið á eða ekki, er með takka frammí til að slökkva og kveikja á honum.

en vitiði hversu marga ampera kapla ég þarf ?
þarf ekki svona stór vél frekar svera kapla

ég ætla að kaupa nýjan rafgeymi fyrir sumarið á bara ekki efni á því núna



Jú, magnarinn er ekki rétt tengdur. Skiptir engu máli hvort þú sért með "kill" takka til að geta drepið output til bassaboxsins eða ekki. Ef þú þarft að slökkva á magnaranum áður en þú ferð út úr bílnum þá ertu með magnarann vitlaust tengdan, minnir endilega að þetta heiti "remote" þessi fídus....gæti verið vitlaust hjá mér en ef þetta væri rétt tengt þá myndi magnarinn deyja þegar svissað er af bílnum.

Author:  Einarsss [ Tue 24. Mar 2009 19:31 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

já minnir þetta líka ... átt að leggja remote snúru úr spilaranum hjá þér yfir í magnarann, þá slökknar á honum sjálfkrafa þegar slökkt er á græjunum

Author:  jon mar [ Tue 24. Mar 2009 20:29 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

einarsss wrote:
já minnir þetta líka ... átt að leggja remote snúru úr spilaranum hjá þér yfir í magnarann, þá slökknar á honum sjálfkrafa þegar slökkt er á græjunum


rétt hjá þér.

Svo getur maður sett takka á remote-ið ef maður er með svo gay spilara að geta ekki slökkt á bassanum þar bara.

Author:  oddur11 [ Tue 24. Mar 2009 21:22 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

eins og er buin að segja þá er þetta bara remote snúran (blá mjó snúra sem liggur frá geislaspilaranum) og ef hun slekkur ekki á magnaranum þá er geislaspilarinn vitlausteigdur (svisa plús og mínus)

Author:  Alpina [ Tue 24. Mar 2009 21:44 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

oddur11 wrote:
eins og er buin að segja þá er þetta bara remote snúran (blá mjó snúra sem liggur frá geislaspilaranum) og ef hun slekkur ekki á magnaranum þá er geislaspilarinn vitlausteigdur (svisa plús og mínus)


Ef að spilarinn er vitlaust tengdur,, afhverju getur hann þá spilað :? :? :?

Author:  íbbi_ [ Tue 24. Mar 2009 22:57 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

það er einföld lausn á þessu, úr með græjuruslið :wink:

Author:  Angelic0- [ Wed 25. Mar 2009 04:42 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

oddur11 wrote:
eins og er buin að segja þá er þetta bara remote snúran (blá mjó snúra sem liggur frá geislaspilaranum) og ef hun slekkur ekki á magnaranum þá er geislaspilarinn vitlausteigdur (svisa plús og mínus)


Hefuru átt við OEM E39 rafmagn og veist alveg hvernig þetta er að aftan á OEM tækinu :?:

Sennilega þarftu að leiða remote í afturljósin og notar þá ljósin til að kveikja og slökkva á magnaranum, einfaldasta lausnin :!:

Author:  oddur11 [ Wed 25. Mar 2009 19:14 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

Alpina wrote:
oddur11 wrote:
eins og er buin að segja þá er þetta bara remote snúran (blá mjó snúra sem liggur frá geislaspilaranum) og ef hun slekkur ekki á magnaranum þá er geislaspilarinn vitlausteigdur (svisa plús og mínus)


Ef að spilarinn er vitlaust tengdur,, afhverju getur hann þá spilað :? :? :?




gerist stundum að gula og rauða séu vitlausar, þá spilar alveg spilarinn en endurstilir sig alltaf þegar það er slökkt og kveikt á bílnum

Angelic0- wrote:
oddur11 wrote:
eins og er buin að segja þá er þetta bara remote snúran (blá mjó snúra sem liggur frá geislaspilaranum) og ef hun slekkur ekki á magnaranum þá er geislaspilarinn vitlausteigdur (svisa plús og mínus)


Hefuru átt við OEM E39 rafmagn og veist alveg hvernig þetta er að aftan á OEM tækinu :?:

Sennilega þarftu að leiða remote í afturljósin og notar þá ljósin til að kveikja og slökkva á magnaranum, einfaldasta lausnin :!:


eða þá nota remote í lykla-svisinum

Author:  Helgi M [ Wed 25. Mar 2009 20:52 ]
Post subject:  Re: rafmagnslaus 540i

Það sem að dúddinn er að meina er að hann vill kannski hlusta á scooter með öskrandi bassa, og fara svo yfir í barry white og drepa bassann í skottinu.. Ættir kannski að tengja magnarann remote, og hafa þá frekar killswitch eða stillanlegan equaliser á snúrum frá magnara til bassans. Það tvennt er ódýrara en sjálfur geymirinn meðal annars... :P

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/