bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

ABS og spólvarnarljós loga í e36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35951
Page 1 of 1

Author:  BirkirB [ Tue 24. Mar 2009 00:03 ]
Post subject:  ABS og spólvarnarljós loga í e36

Var að sækja bílinn í dag og það logar alltaf ABS ljósið og spólvarnarljósið. Tók rafgeyminn að sjálfsögðu úr meðan hann var í geymslu og reprogrammaði lykilinn (tengist þessu pottþétt ekkert)
spólvarnarljósið breytist ekkert þótt ég ýti á spólvarnartakkann og hvorugt ljósið var áður.

Author:  GunniT [ Tue 24. Mar 2009 00:04 ]
Post subject:  Re: ABS og spólvarnarljós loga í e36

Láta lesa af honum

ABS hringur eða skynjari mjög líklegt en getur verið hvað sem er

Author:  Einari [ Tue 24. Mar 2009 10:01 ]
Post subject:  Re: ABS og spólvarnarljós loga í e36

Þú verður já bara að láta lesa af honum, en hinsvegar ef þú vilt spara þér smá pening, þá geturu ohm mælt alla abs skynjarana, minnir að þeir mælist eitthvað rétt rúmlega 3 kílóohm. ef einhver þeirra er langt yfir því, eða langt frá hinum þá er hann slitinn og skynjarinn því ónýtur. Síðan hef ég lent í því að það sé smá járnsvarf á þessum skynjurum(þarft að taka þá úr til að sjá það) afþví að það er segull inni í skynjaranum, og þá getur verið nóg að þurrka svarfið bara af.

en ég mundi allavega byrja á því að mæla alla skynjarana. því að þó svo að þú farir í aflestur, þá getur tölvan bara séð í hvaða hjóli skynjarinn er sem er ekki að virka rétt, og þá er ekkert vit í öðru en að ohm mæla skynjarann áður en nýr er keyptur, því að þetta helvíti kostar augun úr.

Author:  BirkirB [ Tue 24. Mar 2009 13:29 ]
Post subject:  Re: ABS og spólvarnarljós loga í e36

jebb takk!
ætla að skoða þetta áður en ég þarf að keyra til ak til að komast í fkn tölvu...

Author:  oddur11 [ Tue 24. Mar 2009 21:40 ]
Post subject:  Re: ABS og spólvarnarljós loga í e36

eg lenti í þessu um daginn, fór af þegar eg spólaði 8) annars var búið að ráðlegja mer að taka rafgeyminn úr sambandi í svona 5min og setjan aftur í samband og sjá hvort það myndi lagast

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/