Page 1 of 1
E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Sun 15. Mar 2009 15:21
by bjornod
Sælir,
1. "Best að setja kælivatn á bílinn" ljósið kviknaði.
2. Á leið á næstu besínstöð rauk hitamælirinn upp.
3. Komst á bensínstöð og bætti á kælivatnið.
4. Þegar lyklinum er snúið í svissinum, þá kviknar á rauða ljósinu sem sýnir efra mark hitamælisins.
5. Bíllinn startar ekki!! Stundun snýr hann vélinni en aðra stundina kemur bara klikk hljóð.
Getur einhver sagt mér hvers vegna bíllinn startar ekki? Er þetta e-ð tölvudæmi eða er mótorinn farinn í fríið langa?
......held áfram að googla!
p.s hann kældi sig ekki í hægagangi, þannig að ég varð að drepa á honum heitum.
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Tue 17. Mar 2009 00:05
by Sprangus
Semsagt ofhitnaði .. Farin heddpakkning og komið vatn í cylendrana mögulega.
Þjappar ekki vatninu og snýst því ekki.
Reykti hann eitthvað áður en þú drapst á honum?
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Tue 17. Mar 2009 00:23
by Sezar
Drepa þeir ekki sjálfkrafa á við ofhitnun, held það.
Annars þarf hann að hafa gengið slatta lengi heitur til að grilla pakkningu eða vél.
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Tue 17. Mar 2009 01:28
by crashed
hehe hef lent í að bílar hjá mér ofhitni og fari hedpakningar en þetta einhvernveiginn hljómar bara eins og hann sé annað hvort rafmagnslaus eða úrbrædur mótor. en hæpið að þú hafir bræt úr mótornum á svona stutum tíma ekki nema þú hafir ákveðið að fara frá hafnarfirði til keflavíkur til að setja vatn á kælikerfið hehe
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Wed 18. Mar 2009 15:26
by bjornod
Fyrsta greining skv. TB:
1. Ónýt viftuspaðakúpling
2. Ónýtur rafgeymir
3. Brotin vatnsdæla
4. ..............more to come
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Thu 19. Mar 2009 02:27
by Angelic0-
tja, afhverju tapaði hann vatninu áður en að hann hitnaði spyr ég nú bara...
ég ætla að skjóta á að viftukúplingin sé í lagi... það sé eitthvað annað að...
Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Fri 20. Mar 2009 10:24
by bjornod
Angelic0- wrote:tja, afhverju tapaði hann vatninu áður en að hann hitnaði spyr ég nú bara...
ég ætla að skjóta á að viftukúplingin sé í lagi... það sé eitthvað annað að...
Gæti verið að hann hafi tapað kælivatninu vegna þess að vatnsdælan var brotin/lak

Re: E46 330XD ofhitnaði - vill ekki starta

Posted:
Sat 21. Mar 2009 20:47
by ///MR HUNG
bjornod wrote:Angelic0- wrote:tja, afhverju tapaði hann vatninu áður en að hann hitnaði spyr ég nú bara...
ég ætla að skjóta á að viftukúplingin sé í lagi... það sé eitthvað annað að...
Gæti verið að hann hafi tapað kælivatninu vegna þess að vatnsdælan var brotin/lak

Dælan hlítur að vera game over og ef þú hellir vatni á hann ætti hann að fara í gang væntanlega.
Lokagreining fyrir áhugasama

Posted:
Sat 21. Mar 2009 21:42
by bjornod
Þá virðast öll kurl vera komin til grafar og sagan er þá svona:
1. Bíllinn byrjaði að tapa kælivatninu vegna þess að dælan var farin að gefa sig.
2. Í langkeyrslu dugði vindkælingin til að kæla bílinn, en um leið og hægt var á ferðinni hafði viftuspaðakúplingin ekki við (ónýt), bíllinn ofhitnaði og kældi sig ekki í hægagangi þar sem dælan var slöpp og hafði úr litlu að moða auk þess sem viftuspaðinn snérist ekki.
3. Einhverra hluta vegna gekk þetta fram af rafgeyminum í bílunum (slappur fyrir?) og því náði hann ekki að starta.
Nú er búið að skipta um dælu, viftuspaðakúplingu og geymi (samtals 100k) og bíllinn gengur vel. Hins vegar kveiknar alltaf á rauða, efra markinu á hitamælinum þegar svissað er á bílinn. Það er væntanlega einhver villumelding.
Vonandi lýkur sögunni hér. over and out!
p.s nú þarf ég bara að fá DVD-navigation tölvu lánaða til að stilla klukkuna í bílnum.
Re: Lokagreining fyrir áhugasama

Posted:
Sun 22. Mar 2009 00:11
by jon mar
bjornod wrote:Þá virðast öll kurl vera komin til grafar og sagan er þá svona:
1. Bíllinn byrjaði að tapa kælivatninu vegna þess að dælan var farin að gefa sig.
2. Í langkeyrslu dugði vindkælingin til að kæla bílinn, en um leið og hægt var á ferðinni hafði viftuspaðakúplingin ekki við (ónýt), bíllinn ofhitnaði og kældi sig ekki í hægagangi þar sem dælan var slöpp og hafði úr litlu að moða auk þess sem viftuspaðinn snérist ekki.
3. Einhverra hluta vegna gekk þetta fram af rafgeyminum í bílunum (slappur fyrir?) og því náði hann ekki að starta.
Nú er búið að skipta um dælu, viftuspaðakúplingu og geymi (samtals 100k) og bíllinn gengur vel. Hins vegar kveiknar alltaf á rauða, efra markinu á hitamælinum þegar svissað er á bílinn. Það er væntanlega einhver villumelding.
Vonandi lýkur sögunni hér. over and out!
p.s nú þarf ég bara að fá DVD-navigation tölvu lánaða til að stilla klukkuna í bílnum.
Ef það slöknar aftur þegar startað er og draslið komið í gang má væntanlega reikna með að þetta sé bara BULB test eins og gengur þegar svissað er á.
Annars veit ég ekkert um svona nýmóðins farartæki

Re: Lokagreining fyrir áhugasama

Posted:
Sun 22. Mar 2009 14:20
by Danni
jon mar wrote:bjornod wrote:Þá virðast öll kurl vera komin til grafar og sagan er þá svona:
1. Bíllinn byrjaði að tapa kælivatninu vegna þess að dælan var farin að gefa sig.
2. Í langkeyrslu dugði vindkælingin til að kæla bílinn, en um leið og hægt var á ferðinni hafði viftuspaðakúplingin ekki við (ónýt), bíllinn ofhitnaði og kældi sig ekki í hægagangi þar sem dælan var slöpp og hafði úr litlu að moða auk þess sem viftuspaðinn snérist ekki.
3. Einhverra hluta vegna gekk þetta fram af rafgeyminum í bílunum (slappur fyrir?) og því náði hann ekki að starta.
Nú er búið að skipta um dælu, viftuspaðakúplingu og geymi (samtals 100k) og bíllinn gengur vel. Hins vegar kveiknar alltaf á rauða, efra markinu á hitamælinum þegar svissað er á bílinn. Það er væntanlega einhver villumelding.
Vonandi lýkur sögunni hér. over and out!
p.s nú þarf ég bara að fá DVD-navigation tölvu lánaða til að stilla klukkuna í bílnum.
Ef það slöknar aftur þegar startað er og draslið komið í gang má væntanlega reikna með að þetta sé bara BULB test eins og gengur þegar svissað er á.
Annars veit ég ekkert um svona nýmóðins farartæki

Stemmir. Hefur alltaf kviknað á rauða ljósinu þegar ég starta mínum BMW-um
Re: Lokagreining fyrir áhugasama

Posted:
Sun 22. Mar 2009 14:28
by ömmudriver
Danni wrote:jon mar wrote:bjornod wrote:Þá virðast öll kurl vera komin til grafar og sagan er þá svona:
1. Bíllinn byrjaði að tapa kælivatninu vegna þess að dælan var farin að gefa sig.
2. Í langkeyrslu dugði vindkælingin til að kæla bílinn, en um leið og hægt var á ferðinni hafði viftuspaðakúplingin ekki við (ónýt), bíllinn ofhitnaði og kældi sig ekki í hægagangi þar sem dælan var slöpp og hafði úr litlu að moða auk þess sem viftuspaðinn snérist ekki.
3. Einhverra hluta vegna gekk þetta fram af rafgeyminum í bílunum (slappur fyrir?) og því náði hann ekki að starta.
Nú er búið að skipta um dælu, viftuspaðakúplingu og geymi (samtals 100k) og bíllinn gengur vel. Hins vegar kveiknar alltaf á rauða, efra markinu á hitamælinum þegar svissað er á bílinn. Það er væntanlega einhver villumelding.
Vonandi lýkur sögunni hér. over and out!
p.s nú þarf ég bara að fá DVD-navigation tölvu lánaða til að stilla klukkuna í bílnum.
Ef það slöknar aftur þegar startað er og draslið komið í gang má væntanlega reikna með að þetta sé bara BULB test eins og gengur þegar svissað er á.
Annars veit ég ekkert um svona nýmóðins farartæki

Stemmir. Hefur alltaf kviknað á rauða ljósinu þegar ég starta mínum BMW-um
Nú, ég man ekki eftir því að það hafi kviknað þegar ég setti E46'inn minn í gang
