bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Borun í vatnslás https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35641 |
Page 1 of 1 |
Author: | Zed III [ Thu 12. Mar 2009 09:26 ] |
Post subject: | Borun í vatnslás |
daginn, Ég var að lesa mig til um vatnslása á m50b25 og sá á einum stað mælt með því að bora lítið gat á vatnslásin (þar sem upp merkingin er á lásnum) þar sem þetta veldur því að það verður mun auðveldara að bleeda kerfið. Hefur einhver hér séð svona ráðleggingu áður og kannski testað þetta ? |
Author: | Einarsss [ Thu 12. Mar 2009 09:29 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
heyrt af þessu en ekki látið verða af þessu. Sakar ekki að prófa amk |
Author: | Zed III [ Thu 12. Mar 2009 09:32 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
Ég hef nefnilega verið að glíma við að fá ekki nógu mikinn hita í miðstöðina í lausaganginum og grunar að það sé annaðhvort vatnslásinn eða loft á kerfinu sem ég hef ekki náð út. Það er spurning um að slá tvær flugur í einu höggi og bora bara lítið gat í nýja vatnslásinn, en þá myndi ég ná öllu loftinu ef eitthvað er. |
Author: | Einarsss [ Thu 12. Mar 2009 09:35 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
Það er svipað hjá mér, þyrftir að tjakka undir bílinn að framan og lyfta honum slatta og svo lofttæma eða (eins og ég ætla prófa) að fara í einhverja bratta brekku t.d niðrí kringlu og lofttæma þar þegar bílinn er orðinn vel heitur. |
Author: | Aron Andrew [ Thu 12. Mar 2009 11:33 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
Gerðum þetta hjá Árna, man ekki eftir að sjá mun. |
Author: | Lindemann [ Thu 12. Mar 2009 23:57 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
auðveldar kannski við að lofttæma kerfið, en sennilega verðu mótorinn líka lengur að hitna. |
Author: | Zed III [ Fri 13. Mar 2009 06:26 ] |
Post subject: | Re: Borun í vatnslás |
skellti lásnum í bílinn í gær án þess að bora gat. Sennilegast hefðu hönnuðirnir sett gat ef það væri betra að hafa það. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |