bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Sp. varðandi Mössun
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35570
Page 1 of 1

Author:  AntiTrust [ Mon 09. Mar 2009 17:15 ]
Post subject:  Sp. varðandi Mössun

Ég massaði E46 um síðustu helgi með ágætis útkomu, þar á meðal e-r mesta sinaskeiðabólga sem ég hef komist í kynni við.

Ég notaði hinsvegar bónvél, ekki slípirokk og er ekki alveg nógu ánægður með árangurinn. Ég á stillanlegann slípirokk með bónhaus og púða, en hann er þó bara stillanlegur milli 4500-10000rpm, sem mér finnst heldur hratt fyrir mössun. Er ekki venjulega talað um 1800-2000rpm fyrir mössun eða er 4500 í lagi?

Ég ætla sumsé að byrja með grófum massa og taka aðra umferð með fínum, eins og ég gerði síðast.

Öll basic advice eru vel þegin, væri líka gott að fá info um hvaða massa menn eru að nota. Ég keypti 2 týpur af massa í N1 og er ekki alveg nógu sáttur við þá, sérstaklega þar sem að frændi minn var með eldgamlann massa í dollu og notaði á sinn bíl með talsvert betri niðurstöðum, verst bara að ég finn þann massa hvergi.

Author:  Steini B [ Mon 09. Mar 2009 17:34 ]
Post subject:  Re: Sp. varðandi Mössun

4500 er alltof hratt
Lang best að vera með grófann massa, ullarpúða og lítinn hraða

Veit nú ekki hvaða stuff N1 er með, en Málningarvörur eru með góða massa frá Concept

Author:  AntiTrust [ Mon 09. Mar 2009 17:37 ]
Post subject:  Re: Sp. varðandi Mössun

Steini B wrote:
4500 er alltof hratt
Lang best að vera með grófann massa, ullarpúða og lítinn hraða

Veit nú ekki hvaða stuff N1 er með, en Málningarvörur eru með góða massa frá Concept

Hélt það. Hvaða hraði væri þá æskilegastur?

Þarf ég ekki að fara aftur yfir með fínum massa eftir að hafa notað grófann, skilur hann ekki eftir sig swirls?

Author:  Steini B [ Mon 09. Mar 2009 17:42 ]
Post subject:  Re: Sp. varðandi Mössun

AntiTrust wrote:
Steini B wrote:
4500 er alltof hratt
Lang best að vera með grófann massa, ullarpúða og lítinn hraða

Veit nú ekki hvaða stuff N1 er með, en Málningarvörur eru með góða massa frá Concept

Hélt það. Hvaða hraði væri þá æskilegastur?

Þarf ég ekki að fara aftur yfir með fínum massa eftir að hafa notað grófann, skilur hann ekki eftir sig swirls?

Ég bara man það ekki, minnir að það sé svipað og þú nefndir (15-2000)

Jú, lang best að fara með fínni massa yfir og svo gott bón yfir það
Sérstaklega af því að þú ert á svörtum bíl er það ekki?

Author:  AntiTrust [ Mon 09. Mar 2009 17:49 ]
Post subject:  Re: Sp. varðandi Mössun

Okei, þarf þá bara að verða mér úti um slow-rpm slípirokk. Keypti þennan reyndar í Poulsen á sínum tíma, bað sérstaklega um rokk sem gæti séð um að pússa upp lakk sem og massa, skrýtið að þeir hafi selt mér þetta. Líka sérstaklega þar sem það fylgdi með settinu bónhaus og púði.

En nei hann er ekki svartur, en dökkur þó, Topaz Blue heitir liturinn, rosalega fallegur þegar lakkið er vel með farið. Lengi sem betur fer á mjög heillegu eintaki þrátt fyrir keyrslu, aðallega kústa/svamp swirls sem ég vill losna við.

Author:  Steini B [ Mon 09. Mar 2009 18:04 ]

hmm, getur verið mismunandi, mér var allavega kennt að massa á litlum hraða...
Bónið er hinsvegar allt í lagi að taka af á miklum hraða held ég

Author:  Jónas Helgi [ Mon 09. Mar 2009 22:26 ]
Post subject:  Re: Sp. varðandi Mössun

http://www.detailingworld.co.uk/forum/index.php
Hérna fynnur þú allar þær upplýsingar sem í þig getur látið. Þeir mæla flestir með 3M fyrir mössun.
Getur fundið DIY um hvernig þú átt að massa og með hvernig vélum og átökum, fullt af nytsamlegum tæknum sem maður aflar sér þarna :)
Þú tékkar að minsta kosti á þessu, ef þú fynnur ekki þær upplýsingar sem þig vantar áttu ekki að koma nálægt mössun! ;) CUZ ITZ ALL THERE!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/