bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35494 |
Page 1 of 1 |
Author: | JoeJoe [ Fri 06. Mar 2009 03:01 ] |
Post subject: | Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
Sælir kraftsmenn, nú væri ég til að fá smá tips frá ykkur meisturunum um hvað þetta gæti verið. Málið er að það heyrist suð í dekkjunum sona eins og að dekkin séu að nuddast utaní eitthvað en samt er ég búinn að checka á því og það getur ekki verið. Þetta hljóð byrjar þegar ég er kominn á sona 30-40km/klst og eykst eftir því sem ég keyri hraðar. Svo er líka eitt við þetta að hljóðið hættir þegar ég beygi til vinstri en eykst þegar ég beygi til hægri. Það er enginn víbringur í bílnum bara þetta hljóð, fyrir utan víbring sem kemur þegar ég bremsa útaf beygluðum bremsudiskum, nema að það geti einhvernvegin tengst þessu líka. Eru þetta stýrisendarnir að gefa sig eða hjólalegurnar? eða hvað? ég býð svara. kv Jói |
Author: | íbbi_ [ Fri 06. Mar 2009 05:25 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
bara suð? gætu verið hjólalegur já |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 06. Mar 2009 08:48 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
Örugglega hjólalegur, myndi láta tjékka vel að framan og aftan. |
Author: | JoeJoe [ Fri 06. Mar 2009 12:28 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
Hvað haldiði að þetta tæki langann tíma í verkstæðisvinnu, að skipta um þetta? |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 06. Mar 2009 19:48 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
JoeJoe wrote: Hvað haldiði að þetta tæki langann tíma í verkstæðisvinnu, að skipta um þetta? Mismunandi, en cirkabout 2-5 tíma. |
Author: | hjá [ Fri 06. Mar 2009 23:48 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
dæmigert fyrir hjólalegu þagnar þegar þú tekur af henni álagið í aðra áttina |
Author: | AntiTrust [ Sat 07. Mar 2009 03:17 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
Ég er með ónýta hjólalegu, og er með NÁKVÆMLEGA sömu einkenni. Er bara að bíða eftir nýrri. Annars er nú yfirleitt sáraeinfalt að ath. hvort þetta sé hjólalegan, taktu bara vel á framdekkjunum, þú heyrir að annað dekkið gengur örlítið til með smellum með réttu átaki, og þar hefuru hvoru megin það er. |
Author: | Zed III [ Sat 07. Mar 2009 08:51 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
ef þetta er legan þá er hérna diy á þetta: http://forum.e46fanatics.com/showthread.php?t=610725 Virðist ekki of flókið ef þú ert með afdráttar kló. |
Author: | Zatz [ Sat 07. Mar 2009 14:37 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
er þetta ekki bara snjór sem festist undir brettinu þegar það snjóar? ![]() |
Author: | JoeJoe [ Sat 07. Mar 2009 23:56 ] |
Post subject: | Re: Leiðinlegt hljóð í e46 316 í hjólabúnaði. |
DrWho wrote: ef þetta er legan þá er hérna diy á þetta: http://forum.e46fanatics.com/showthread.php?t=610725 Virðist ekki of flókið ef þú ert með afdráttar kló. Snilld, einmitt það sem mig vantaði ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |