bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skipta um Sjalfskipting
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35472
Page 1 of 2

Author:  Siniko [ Thu 05. Mar 2009 03:06 ]
Post subject:  Skipta um Sjalfskipting

Jæja, mer langaði að vita hversu mikið vesen er að láta skipta um Sjalfskipting

Það sem er að sjalfskiptinging min er að þegar bilin er kaldur þá er hann fastur i fyrsta gir, þegar hann er að skipta um gir þá höggast hann, og nuna er bara eitthvað bakkgirið rosa skritið

Þannig eg er að spa i Hvað er að :)

Author:  maxel [ Thu 05. Mar 2009 03:12 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Hvernig bíll er þetta?
Væri fínt að vita að og sjá hvort einhver annar hefur lent í svipuðu veseni. ;)
Getur verið að það vanti olíu á skiptinguna?
Getur einhver staðfest þetta? :)

Author:  Siniko [ Thu 05. Mar 2009 03:14 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

e32 735i 86 árgeir

buin að skipta um olíu og síu nylega, bilin er ekin 150þus

Author:  srr [ Thu 05. Mar 2009 14:08 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

'86 árgerð E32 ??
Kom hann ekki fyrst '87 ?

Author:  emilth [ Thu 05. Mar 2009 15:35 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Sæll, það er minnsta mál að skipta um þessa skiptingu hjá þér :wink:
Bara muna að skipta um pakkdósina fremst á henni, þar sem túrbínan tengist henni, til að losna við leka :)
Hef gert þetta aaaðeins ooof oft, og þetta tekur alltaf styttri og styttri tíma, bara plug and play :twisted:

Author:  íbbi_ [ Thu 05. Mar 2009 23:03 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

nei E32 fékst árið 86, það er í nánast öllum tilfellum sem bílar koma sem árgerðin á eftir árinu sem þeir komu, t.d E32 kemur raunverulega 86, E34 kom í sölu árið 87, E39 M5 kemur 98, og svo framvegis,

núna eru 2010 modelin að rúlla í sýningasalina

Author:  Siniko [ Fri 06. Mar 2009 01:13 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Væri Einhvern sem nennir að hjalpa mig og er með astæður til þess að skipta þessa skiptingu .. ? , orðið rosalega böggandi :), og er ekki alveg til i að borga verkstæði til þess að gera það :/

Author:  Siniko [ Fri 06. Mar 2009 16:08 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

ttt :D

Author:  birkire [ Fri 06. Mar 2009 16:27 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Umm, áttu aðra skiptingu í lagi til þess að setja í bílinn ?

Author:  elli [ Fri 06. Mar 2009 18:45 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

birkire wrote:
Umm, áttu aðra skiptingu í lagi til þess að setja í bílinn ?

Það er stóra spurningin... þær liggja ekki á lausu þessar ZF4HP22

Author:  Lindemann [ Fri 06. Mar 2009 20:37 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

elli wrote:
birkire wrote:
Umm, áttu aðra skiptingu í lagi til þess að setja í bílinn ?

Það er stóra spurningin... þær liggja ekki á lausu þessar ZF4HP22


Það er sennilega afþví hann emilth er búinn að klára þær allar..........er búinn með einhver 6stk eða svo.

Þegar menn fara að fatta að það sé hægt að taka upp skiptingar, þá verður þetta ekkert mál :D

Author:  Siniko [ Fri 06. Mar 2009 21:02 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Eg var að kaupa e32 735iA 92 i dag, og það sem mer skilst er hun i lagi.

Author:  emilth [ Fri 06. Mar 2009 21:16 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Lindemann wrote:
elli wrote:
birkire wrote:
Umm, áttu aðra skiptingu í lagi til þess að setja í bílinn ?

Það er stóra spurningin... þær liggja ekki á lausu þessar ZF4HP22


Það er sennilega afþví hann emilth er búinn að klára þær allar..........er búinn með einhver 6stk eða svo.

Þegar menn fara að fatta að það sé hægt að taka upp skiptingar, þá verður þetta ekkert mál :D


:bawl: :oops: :oops: hehe neei ég á víst bara 4 núna, og 3 af þeim alveg ónýtar, en hafði nú hugsað mér að gera þær upp :lol: Gengur ekki að hafa þær allar ónýtar :oops:

Author:  Siniko [ Fri 06. Mar 2009 21:17 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

okei, en einhvern sem getur sett þessa skiptingu i fyrir mer eða ?

Author:  elli [ Fri 06. Mar 2009 22:22 ]
Post subject:  Re: Skipta um Sjalfskipting

Siniko wrote:
okei, en einhvern sem getur sett þessa skiptingu i fyrir mer eða ?

emilth :!:
hann virðist vera í góðri æfingu :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/