bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Heddpakkningarskipti
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35454
Page 1 of 2

Author:  maxel [ Wed 04. Mar 2009 01:30 ]
Post subject:  Heddpakkningarskipti

Gróf spurning, þannig ég býst við grófu svari.
Hvað kostar að skipta um heddpakkningu?

Author:  Svessi [ Wed 04. Mar 2009 03:59 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Vantar alveg inn í spurninguna hjá þér hvort þú ert að leita eftir kostaði á verkstæði eða gera það sjálfur.

Ég ætla að taka til hérna grófalega kostað á þeim hlutum sem þú þarf að kaupa ef þú gerir það sjálfur, reikna með að þú eigir öll verkfæri til.

Í fyrsta lagi er það pakningin sjálf allt frá 5000 kr og uppí 15.000 og jafnvel meira fyrir venjulega 6 og 8 cyl bíla. (Fyrir M30 vélarnar hefur það yfirleitt verið um 7000-8000 kr)

Í BMW eru svokallaðir teigjuboltar sem heddboltar sem þarf að kaupa nýja sem kosta um 4000-5000 kr

Svo auðvitað Ný olía og Kælivökvi og fyrst maður skiptir um olíu þá skiptir maður sennilega líka í leiðinni um olíusíu og loftsíu og þetta gæti kostað um 10.000-15.000 kr

Spurning hvort þú þarf að kaupa þér manual 5000-10.000 kr

Head gasket remover spray, minnir að það sé í kringum 800 kr brúsinn og yfirleitt nota ég meira en einn.

Svo getur alltaf komið eitthvað upp, þar sem manni finnst að maður ætti að nota tækifærið og skipta um, t.d. viftureim eða pakningar, hosur eða annað.

Sem dæmi tók ég einn af bílunum mínum í fyrra, og ætlaði bara að gera "einfalda" heddpakningarskipti. Það endaði á því að það var allt keypt sem hér fyrir ofan er talið auk nýs vatnskassa, viftureim, tímareim, vatnslás, nokkrar littlar pakningar og fl.
Sá pakki endaði hátt í 70 þús kr. Sem var samt þokkalega vel sloppið miðað við allt sem ég gerði.

Ég held að þokkalegt verkstæði taki að lámarki 15-20 tíma fyrir að skipta um heddpakningu á 6 eða 8 cyl bíl. Fer eftir tegund og vél.

Author:  Alpina [ Wed 04. Mar 2009 06:47 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Undir flestum aðstæðum ,, er einnig skipt um tímareim

Author:  Einarsss [ Wed 04. Mar 2009 08:29 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

á hvaða vél?


m20 =

heddpakkning 5k hjá kistufelli,TB
olía ca 5k (n1)
kælivökvi = 5k (n1)
tímareim 4k (bogl)

svo spurning hvort þig vanti pústpakkningar ... bara dýrar hjá bogl eða soggreina 2500 kall (bogl)

Author:  Axel Jóhann [ Wed 04. Mar 2009 10:51 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Þegar ég skipti síðast um í E34 hjá hjá mér.



Slípisett í efri part vélar og heddboltar 14.800 hjá kistufelli

Tímareim 3,700 hjá kistufelli

Strekkjarahjól ~2,000 hjá kistufelli

Vatnsdæla 9,000 hjá TB

Olía og kælivökvi cirka 7,000 Skeljungur

Plana heddið og þrifið upp 18,000kr hjá kistufelli

Author:  maxel [ Wed 04. Mar 2009 12:12 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Þakka góð svör, þetta er minna en ég bjóst við, en er eitthvað mál fyrir mann með einhverja bílskúrs reynslu að gera þetta ef maður fer eftir bókinni?

Author:  Axel Jóhann [ Wed 04. Mar 2009 12:13 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

maxel wrote:
Þakka góð svör, þetta er minna en ég bjóst við, en er eitthvað mál fyrir mann með einhverja bílskúrs reynslu að gera þetta ef maður fer eftir bókinni?




Þetta er alls ekki mikið mál:D

Author:  Geirinn [ Wed 04. Mar 2009 12:19 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Axel Jóhann wrote:
maxel wrote:
Þakka góð svör, þetta er minna en ég bjóst við, en er eitthvað mál fyrir mann með einhverja bílskúrs reynslu að gera þetta ef maður fer eftir bókinni?




Þetta er alls ekki mikið mál:D


..... but it can fail :D

Author:  maxel [ Wed 04. Mar 2009 12:24 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Axel Jóhann wrote:
maxel wrote:
Þakka góð svör, þetta er minna en ég bjóst við, en er eitthvað mál fyrir mann með einhverja bílskúrs reynslu að gera þetta ef maður fer eftir bókinni?




Þetta er alls ekki mikið mál:D

Sweeeeet 8)

Author:  gstuning [ Wed 04. Mar 2009 12:26 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

maxel wrote:
Þakka góð svör, þetta er minna en ég bjóst við, en er eitthvað mál fyrir mann með einhverja bílskúrs reynslu að gera þetta ef maður fer eftir bókinni?


Því meira sem þú skilur við ferlið að skipta um heddpakkningu því einfaldara lítur ferlið út.
Það eru samt hlutir sem þarf að fylgjast vel með.

Hedd yfirborð sem kemur á móts við heddpakkningu er eins slétt og hreint og hægt er að ná því
Sama á við um blokkina.
ventla tími og stimpil stöður og afhverju þetta þarf að vera rétt.

Author:  maxel [ Wed 04. Mar 2009 12:34 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Fæ bara Axel Jóhann til að græja þetta.
Læt skrifa undir tryggingu að ef hún skemmist innann við tvo kílómetra borgar hann mér 700 þúsund.
Þá verð ég ríkur maður :D

Author:  Einarsss [ Wed 04. Mar 2009 12:47 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

ertu að fara gera þetta á m20?

Author:  Axel Jóhann [ Wed 04. Mar 2009 13:30 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

maxel wrote:
Fæ bara Axel Jóhann til að græja þetta.
Læt skrifa undir tryggingu að ef hún skemmist innann við tvo kílómetra borgar hann mér 700 þúsund.
Þá verð ég ríkur maður :D





Það er minnsta málið að koma einhverja helgina og hjálpa þér með þetta. :)

Author:  Zed III [ Wed 04. Mar 2009 13:46 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

Axel Jóhann wrote:
maxel wrote:
Fæ bara Axel Jóhann til að græja þetta.
Læt skrifa undir tryggingu að ef hún skemmist innann við tvo kílómetra borgar hann mér 700 þúsund.
Þá verð ég ríkur maður :D





Það er minnsta málið að koma einhverja helgina og hjálpa þér með þetta. :)


gildir þetta fyrir alla ? :lol:

Author:  íbbi_ [ Wed 04. Mar 2009 13:58 ]
Post subject:  Re: Heddpakkningarskipti

heddpakningaskipti virðast einföld, en flest allir sem reyna klúðra þeim, grínlaust,

fá réttar herslutölur, fara eftir þeim, herða í réttri röð. hafa yfirborðið raunverulega slétt og fellt, ekki nota boltana aftur ef þetta eru teygjubolltar, og þótt þetta séu ekki teygjubolltar, skoða þá vel, láta athuga með heddið, ég skipti um heddpakningar í v8 bíl fyrir strák, sem var bara mikil vinna og erfitt að komast af öllum (gömlu vetta) hann fullyrti að heddin væru í lagi það væri einhver spaði búinn að segja það og blablabla, ég eyddi 2dögum í þetta og svo svo gékk bíllinn í smástund áður en allt fór aftur, útaf heddunum, sá sem tekur af ser verk getur oft lent í að þurfa taka svoleðis bull á sig

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/