bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Að renna í afturrúðu í z3?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35425
Page 1 of 2

Author:  Marino [ Tue 03. Mar 2009 09:18 ]
Post subject:  Að renna í afturrúðu í z3?

Lennti í þeirri ósköp að það kom gat á afturrúðuna og þar að leiðandi þarf að skipta um.
Er að spá í hvort einhverjir menn hafa tæklað þetta hérna, og hvort þetta sé nokkuð of mikið mál?

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 09:29 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Það eru amk 2 hér sem eru með þetta á listanum hjá sér, þar á meðal ég.

Ég er kominn með rúðuna í hús og miðað við leiðbeiningar á þetta að vera undir klukkutímaverk fyrir 2. Ég geri ráð fyrir að fara í þetta fljótlega.

Author:  Marino [ Tue 03. Mar 2009 09:42 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Jamm, mér skilst þetta eigi að vera tilturlega einfalt, er samt aðalega að spá með fráganginn, þannig það fari ekki að leka.
En ég sé þetta eflaust á eftir þegar ég sæki þetta hjá mér, maður er bara að forvitnast svona á ýmsum stöðum, veit allavega TB treystu sér
allvega ekki í þetta. :)

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 09:48 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Magnað að TB hafi ekki viljað taka þetta að sér.

Ert þú búinn að fjárfesta í rúðu ? Ég keypti mína í gegnum eBay þar sem mig langaði í dekkta frekar en umboðsrúðuna.

Það skiptir annars miklu að hafa rétta efnið til að þétta rúðuna skilst mér.

En auðvitað á maður ekkert að vera að fara út á bílnum þegar það er rigning :wink:

Author:  Svezel [ Tue 03. Mar 2009 10:07 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Ég hef skipt um rúðu í Z3 og það er ekkert voðalegt mál.

Gæti svosem aðstoðað menn gegn vægri greiðslu ef þeir vilja

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 10:09 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Svezel, hefur þú skipt um orginal rúður eða þessa frá Emiata ?

Author:  Marino [ Tue 03. Mar 2009 10:15 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

þeir eiga original rúðu uppí BogL sem ég er að sækja á eftir, og því miður býr maður ekki við þeirri blessun ennþá að geta rekið tvo bíla,
annars væri ég ekkert að stressa mig á þetta.
En ég sé til á eftir bara hvað ég fæ með þessa rúðu uppá ísetningu.

Author:  Svezel [ Tue 03. Mar 2009 10:18 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

DrWho wrote:
Svezel, hefur þú skipt um orginal rúður eða þessa frá Emiata ?


Orginal

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 10:26 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Svezel wrote:
DrWho wrote:
Svezel, hefur þú skipt um orginal rúður eða þessa frá Emiata ?

Orginal


Ég fór gegn betri vitund í Emiata þar sem plastið er sterkara og það var hægt að fá það skyggt. Ég vona bara að rennilásinn verði ekki of mikið PITA.

Author:  Marino [ Tue 03. Mar 2009 14:43 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Fór og sókti rúðuna uppí BogL, allt í góðu þar, ísetningar kitt og allt virðist vera simple, reyndar eitthverskonar kemmur sem ég veit ekki til hvers eru, en var að spá
hvort þú getur nokkuð deilt með mér þessar leiðbendingar? skannar þær inn eða eitthvað

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 14:51 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Ég held að ég eigi þær á tölvutæku, sendi þær í kvöld ef ég finn þær.

Author:  Marino [ Tue 03. Mar 2009 15:45 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

kúl, það yrði allavega vel þegið

Author:  Zed III [ Tue 03. Mar 2009 15:56 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Google is your pal. Tékkaðu á þessu:

http://www.zscca.org/techtopics/images/ ... ctions.pdf

Author:  Zed III [ Wed 04. Mar 2009 09:51 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

Marino, ég vona að þú setjir inn fréttir af því hvernig skiptin gengu.

Author:  Marino [ Wed 04. Mar 2009 12:28 ]
Post subject:  Re: Að renna í afturrúðu í z3?

jamm, ég set inn status report þegar ég er búin að þessu, ræðst örugglega á þetta á næstu dögum.
lítur allavega tilturlega simple út, og takk aftur fyrir að benda mig á þessar leiðbendingar, eiga eflaust eftir nýtast mér vel.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/