Page 1 of 4
Hinn Íslenski BITURBO er........Lasinn

Posted:
Thu 27. Nov 2003 23:47
by Alpina

Posted:
Fri 28. Nov 2003 00:02
by hlynurst
Æjæj...
$$$$$$$$$

Posted:
Fri 28. Nov 2003 00:09
by Jss
Ouch, þetta kemur til með að kosta mange penge

Posted:
Fri 28. Nov 2003 00:23
by saemi
Nú hvahh, ekki svo slæmt.
En þetta með báðar túrbínurnar kostar örugglega slatta.

Posted:
Fri 28. Nov 2003 00:41
by hlynurst
Nákvæmlega!
En ég væri alveg til í þennan bíl þegar það er búið að gera við hann.


Posted:
Fri 28. Nov 2003 01:58
by GHR
Þetta er nú ekki alslæmt.... 2 rockerarmar og síðan skiptir hann auðvitað um þetta ''basic'' hluti
Örugglega svo skemmtilegir bílar


Posted:
Fri 28. Nov 2003 08:47
by bebecar
Þetta er nú líklega bara normal fyrir utan peningana sem fara í tvær túrbínur - það er örugglega eitthvað til að svitna yfir.
Einu sinni dreymdi mann um að öppgreida úr M5 í Alpina B10, eins gott að maður gerði það ekki með þennan tiltekna bíl.

Posted:
Fri 28. Nov 2003 09:05
by Jss
bebecar wrote:Þetta er nú líklega bara normal fyrir utan peningana sem fara í tvær túrbínur - það er örugglega eitthvað til að svitna yfir.
Einu sinni dreymdi mann um að öppgreida úr M5 í Alpina B10, eins gott að maður gerði það ekki með þennan tiltekna bíl.
Þá væri E34 M5 hugsanlega að lenda í þessu núna
Er það ekki annars


Posted:
Fri 28. Nov 2003 09:54
by bebecar
nei, hann væri á M5 og ég komin á biturbo! Ég sá B10 alltaf fyrir mér sem næsta skref á eftir M5, þ.e. þangað til ég ákvað að kaupa stærri íbúð.

Posted:
Fri 28. Nov 2003 09:57
by Jss
OK, grunaði það svosem en datt þetta í hug líka


Posted:
Fri 28. Nov 2003 10:34
by Logi
Það væri örugglega gaman að eiga BiTurbo og þetta eru örugglega alveg MAGNAÐIR bílar, ég ætla ekkert að efast um það.... En ég myndi samt aldrei leggja í það að eiga svona bíl!

Posted:
Fri 28. Nov 2003 11:13
by bebecar
Maður þyrfti að vera vel múraður - það er engin spurning og eiga óaðfinnanlegt eintak.
Svo væri Lotus Carlton alltaf góður valkostur á móti...

Posted:
Fri 28. Nov 2003 12:07
by Logi
Ég persónulega myndi frekar velja Lotus Carlton, miklu meira spes bíll og örugglega svipaður í rekstri......
Þetta eru náttúrulega bara flottir bílar!

Posted:
Fri 28. Nov 2003 12:27
by Jss
En þetta er ekki BMW
Líst nú betur á B10 biturbo en síðan veit maður ekki alveg fyrr en maður hefur prófað þá.

Posted:
Fri 28. Nov 2003 12:29
by bebecar
Alpina er ekki heldur BMW

ekki strangt tiltekið.
PS, ekki eruð þið hjá B&L með partlista fyrir Alpina bíla? Væri gaman að vita hvað túrbínurnar kosta....