bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Olía sullast út um olíukvarðamæligat https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35263 |
Page 1 of 1 |
Author: | AntiTrust [ Tue 24. Feb 2009 23:56 ] |
Post subject: | Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Þetta ætlar ekkert að hætta... Það sullast olía útum olíukvarðamælingargatið ef ég toga stöngina út á meðan bíllinn er í gangi. Getur stíflaður hvarfi valdið slíkum "bakþrýsting" eða hvað það kallast? (Er ekki ennþá búinn að fara með hann í púst) eða er þetta meira mál en það, stimpilhringir, heddpakkning? Svo er hjólalega að framan farin að gefa frá sér óhljóð, er nokkuð voðalegt vesen að skipta um þetta? Fannst þetta líta einfaldara út en ég er vanur, sem þýðir yfirleitt of gott til að vera satt. |
Author: | Axel Jóhann [ Wed 25. Feb 2009 00:08 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Já, hvarfinn örugglega fullur af skít eftir að síðasta túrbína fór hjá þér, og já það ætti ekki að vera mikið mál að skipta um hjólaleguna. Mæli með því að þú hringir í Fálkann og kaupir legu þar. |
Author: | AntiTrust [ Wed 25. Feb 2009 00:15 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Takk f. það vinur, gott ef satt reynist, er hálfpartinn kominn með nóg af dýru veseni í bili. Eru þær ódýrari í fálkanum, kosta 14k í TB? |
Author: | Axel Jóhann [ Wed 25. Feb 2009 00:16 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Athugaðu allavega í fálkanum, þeir eru oftast ódýrari, en getur verið að það sé ekki þannig með þessar. ![]() |
Author: | Djofullinn [ Wed 25. Feb 2009 00:28 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu |
Author: | AntiTrust [ Wed 25. Feb 2009 00:41 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Djofullinn wrote: Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu Danni, af öllu því sem hefur verið að bílnum hefuru alltaf stungið uppá þessari síu ![]() .. Væri samt voða gott ef þú myndir kíkja í eina kvöldstund eða svo og sýna mér hana samt ![]() |
Author: | Astijons [ Wed 25. Feb 2009 01:28 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Hvar fékkstu þennan bíl Hemmi? úr sjónum eða? ![]() |
Author: | AntiTrust [ Wed 25. Feb 2009 01:34 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Astijons wrote: Hvar fékkstu þennan bíl Hemmi? úr sjónum eða? ![]() Kolaportinu ![]() |
Author: | Dóri- [ Wed 25. Feb 2009 02:34 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
AntiTrust wrote: Djofullinn wrote: Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu Danni, af öllu því sem hefur verið að bílnum hefuru alltaf stungið uppá þessari síu ![]() .. Væri samt voða gott ef þú myndir kíkja í eina kvöldstund eða svo og sýna mér hana samt ![]() http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=11&fg=15 nr 8 á mynd, undir þessu er sía sem stíflast af sóti og allskonar viðbjóði, finn hana ekki á realoem, farðu í bogl og keyptu þessa síu og skiptu um hana. |
Author: | SævarM [ Wed 25. Feb 2009 17:23 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
ef að olían er að sullast þarna út er líklega að blása ofan í pönnu hjá þér og geta það verið ónýtir hringir. þar sem það þarf svolítið mikinn óeðlilegan þrýsting til að ná að ýta olíunni þarna upp. oftast nær er það mjög vont ef að olíukvarði bara losnar upp. og ef að öndunin er stífluð á ventlalokunum er það samt sem áður eitthvað meira að því að það á ekki að myndast svona mikill þrýstingur þar, getur prófað að taka öndunina af og sjá hvort það komi blástur úr önduninni í takt við sprengingar vélarinn, ef svo er myndi ég ath það betur t.d með að þjöppumæla. |
Author: | slapi [ Sat 28. Feb 2009 18:20 ] |
Post subject: | Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat |
Myndi kíkja á síuna og ef að hann er með síu en ekki endurbættri gerðinni sem er skilja myndi ég skipta um hana samt sem áður. Getur fengið innvolsið í öndunarhúsið og þarf ekki að kaupa lokið með öllu. mjög líklegt. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |