Page 1 of 1

Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 23:28
by Einsii
Sælir.
Ég er búinn að skoða vörulista hjá Olís en sé ekki hjá þeim 10w-60 olíu og er einmitt búinn að sjá að olían virðist heita Castrol Edge í dag.
En allavega veit einhver hvar ég fæ þessa olíu á íslandi sem Alpina mælir með, eða eitthvað sambærilegt.
Image

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 00:23
by Jökull
Er þetta ekki það sama og á M bílana ?? það er allaveg Castrol 10W/60 fæst hjá B&L ;)

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 17:38
by SævarM
Fæst held ég líka í poulsen allaveg fæst 10W/60 þar

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Feb 2009 12:11
by Tombob
Poulsen eru ekki með þetta lengur.

Lagerinn hjá Olís niður í Klettagörðum á til Castrol TWS motorsport olíuna.
Tók gæjann reyndar 20 mínútur að finna hana þannig að þetta er líklega ekki heitasta varan hjá þeim.

Mig minnir að ég hafi borgað 16.000 fyrir 7 lítra. Eitthvað nálægt því allavega.

Kv,
Tómas

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Feb 2009 12:52
by doddi1
af hverju mæla þeir sérstaklega með þessarri olíu?

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Feb 2009 15:15
by pes1
ég borgaði 16.700 fyrir 6 lítra af 10w-60 castrol hjá B&L í síðustu viku!

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Feb 2009 18:14
by Tombob
kíkti á nótuna og þetta voru 16.840 fyrir 7 lítra

kv,
Tómas

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Mon 16. Mar 2009 10:48
by Einsii
hvar getur maður venjulega sèð hversu mikil olía fer à mótorinn?
Stendur þetta kanski einhverstaðar í húddin, eða þekkið þið enhverjar góðar síður með svona upplýsingum?

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Mon 16. Mar 2009 13:21
by Einari
oft hafa fyrrverandi eigendur skrifað þetta í smurbókina :)

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 17. Mar 2009 10:28
by Solid
Fyndið, sama olía og þeir mæla með á MINI.

Þar er reyndar bara mælt með Castrol Olíu en í bókinni er gefið upp tegundina Castrol Edge.

Nota örlítið þynnri olíu en mælt er með.

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Thu 19. Mar 2009 17:35
by Angelic0-
starionturbo wrote:Fyndið, sama olía og þeir mæla með á MINI.

Þar er reyndar bara mælt með Castrol Olíu en í bókinni er gefið upp tegundina Castrol Edge.

Nota örlítið þynnri olíu en mælt er með.


Castrol Edge er spes olía...

"not only oil, but engineering"

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Mar 2009 21:51
by Axel Jóhann
starionturbo wrote:Fyndið, sama olía og þeir mæla með á MINI.

Þar er reyndar bara mælt með Castrol Olíu en í bókinni er gefið upp tegundina Castrol Edge.

Nota örlítið þynnri olíu en mælt er með.




Við eigum til niðrá verkstæði olíu á þinn. Castrol Edge 5w30 minnir mig að hún heiti.

Re: Olían sem Alpina mælir með

PostPosted: Tue 24. Mar 2009 21:58
by Alpina
Axel Jóhann wrote: Castrol Edge


Er það gæinn þarna í U2 :angel: