bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

e30 rafmagn
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=35123
Page 1 of 2

Author:  BMWPOWER [ Thu 19. Feb 2009 01:20 ]
Post subject:  e30 rafmagn

einn daginn þegar ég kom uppí skúr til að leyfa einum vini mínum að skoða hann þá virkaði hvorki flautan, fram og háuljósin, en allt annað virkaði, getur þetta verið lélegur geymir eða eitt af þessu týbíska e30 rafmagsveseni?

Author:  Svessi [ Thu 19. Feb 2009 05:31 ]
Post subject: 

Hljómar eins og laust, lélegt eða ónýtt relay.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 19. Feb 2009 11:19 ]
Post subject: 

ATH öll öryggi.

Author:  BMWPOWER [ Fri 20. Feb 2009 16:12 ]
Post subject: 

tékka á því, takk fyrir góð svör

Author:  BMWPOWER [ Mon 23. Feb 2009 01:18 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

skoðaði þetta aðeins betur, og þegar ég ýti á flaututakkann eða blikka háuljósin, þá klikkar eða smellur í einu realyinu, prófaði að setja annað realy og það breyttist ekkert, en þegar ég kveiki og slekk lágu, þá er sama sagan, nema að það klikkar einhverstaðar annarstaðar, eru önnur öryggi einhverstaðar? hef ekkert skoðað það mikið þar sem ég ligg heima í flensu

Author:  maxel [ Mon 23. Feb 2009 02:10 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

Er örugglega rafmagn á bílnum?
Engin ljós dauf og allt virkar sem skyldi? Td. útvarp.

Author:  BMWPOWER [ Mon 23. Feb 2009 22:17 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

er reyndar úrvarpslaus eins og er, en eftir að þetta hætti að virka þá hafa öll ljós sem virka flögt soldið þegar hann er í gangi

Author:  maxel [ Mon 23. Feb 2009 23:22 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

Alternator og hann er líklega bara rafmagnslaus....

Author:  BMWPOWER [ Mon 23. Feb 2009 23:37 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

fer í gang eins og ekkert sé, öll ljós kvikna nema framljósin, háuljósin og flautan, og ljósin flökkta bara þegar hann er í gangi, annars loga þau eðlilega

Author:  Svessi [ Tue 24. Feb 2009 01:22 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

En hefuru nokkuð athugað hvort geti verið að báðar perurnar séu ónýtar og flautan biluð?

Author:  GunniT [ Tue 24. Feb 2009 13:29 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

ertu búin að athuga með hvort loomið þar sem höggið kom á bílinn sé ekki einfaldlega bara í sundur..???

Author:  BMWPOWER [ Tue 24. Feb 2009 17:17 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

er ekki búinn að tjekka almenilega á því, en nokkrir vírar eru soldið marðir, en getur altenatorinn verið orðinn lélegur útaf flökktinu í ljósunum? svo áður en að flautan hætti að virka þá lækkaði hún og lækkaði og hætti svo að virka alveg

Author:  BMWPOWER [ Fri 27. Feb 2009 13:07 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

svo er líka farið að heyrast eitthvað skrýtið hljóð úr vélinni þegar hún er köld, glamrar neðarlega í henni, en svo þegar hann hitnar þá hverfur þetta, líka ef maður gefur hressilega í þegar hún er köld þá hækkar glamrið en hverfur svo, en þegar maður slær af aftur þá kemur þetta aftur, getur verið að hann sé að fara á einhverjum legum? M42B18

Author:  Einarsss [ Fri 27. Feb 2009 13:13 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

Ættir mögulega að geta séð það á olíunni ... amk sýndi Einar Óli mér filterinn hjá andrew eftir að mótorinn fór á stangarlegu og það var svona sansering í olíunni ... litlar málmflögur eins og glimmer eða eitthvað álíka

Author:  íbbi_ [ Fri 27. Feb 2009 22:05 ]
Post subject:  Re: e30 rafmagn

BMWPOWER wrote:
svo er líka farið að heyrast eitthvað skrýtið hljóð úr vélinni þegar hún er köld, glamrar neðarlega í henni, en svo þegar hann hitnar þá hverfur þetta, líka ef maður gefur hressilega í þegar hún er köld þá hækkar glamrið en hverfur svo, en þegar maður slær af aftur þá kemur þetta aftur, getur verið að hann sé að fara á einhverjum legum? M42B18

°

þetta hljómar eins og úrbræddur mótor, p.s ekki þenja kaldan mótor

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/