Page 1 of 2
Jæja nú er ég að fá nóg af 525

Posted:
Thu 12. Feb 2009 10:55
by Saxi
Fór með bílinn í aflestur í T.b í gær og þar komu fram villur í loftflæðimæli. Ástæðan fyrir lestrinum var síversnandi gangur í bílnum.
Lýsir sér þannig að hann gengur gróft og versnar eftir því sem að hann hitnar, kraftleysi og hann koðnar niður við inngjöf. Sérstaklega slæmur virðist hann vera eftir hressilegar inngjafir. Þá rétt lafir hann í gangi en virðist svo hressast smám saman eftir rólegan akstur.
Ég vil nú ekki fara að hugsa um Vöku alveg strax en ég er orðinn virkilega pirraður á þessu.
Einhver sem gæti varpað einhverju ljósi á þetta?
Já er er by the way kominn með nýjan loftflæðimæli og bíllinn nákvæmlega eins á eftir.
Kv.
Egill

Posted:
Thu 12. Feb 2009 10:59
by Bjarki
gæti verið súrefnisskynjari
vatnshitamælirinn fyrir Motronic tölvuna
getur mælt súrefnisskynjarann
eða prófað að taka hann úr sambandi og loftflæðiskynjarann líka.
þá á hann að keyra bara á default value
hef keyrt svona bíl þannig og það virkaði, ágætt til að útiloka a.m.k.
svo koma aðrir hlutir til greina, háspennukefli, kerti o.s.frv.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 11:32
by Axel Jóhann
Ég skal bara láta þig fá fallegan Ford Bronco II skoðaðr út 2009 með bilaðann bakkgír í staðinn, þá ertu laus við þetta vandamál.


Posted:
Thu 12. Feb 2009 11:56
by Hlynur___
búin að athuga litlu slönguna undir miðju manifoldinu??

Posted:
Thu 12. Feb 2009 14:53
by Saxi
Allar vacumslöngur nýjar undir manifoldinu. Líka pakkningarnar á því sjálfu.
Kertin eru tiltölulega nýleg.
Nýr O2 skynjari
Nýr MAF
Virðist ganga á öllum, allavega breytist gangurinn á öllum cylendrum þegar ég tek háspennukefli úr sambandi.
Á ekki græjur til að bensínþrýstingsmæla þannig að ég fór með hann í Bíltak á Selfossi og fæ vonandi út úr því í dag eða í fyrramálið. Þeir ætla að þjöppumæla líka svona til að fá smá status update á vélina.
Þakka svörin
Fer að gruna hluti eins og bensíndælu og jafnvel hvarfakút.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 14:54
by gunnar
Taktu hvarfann bara undan og settu kuta i staðinn..
Billinn þinn er 94 argerð þannig það sleppur


Posted:
Thu 12. Feb 2009 15:01
by Axel Jóhann
Saxi, tilboðið mitt stendur hérna ofar, en já fyrst það er enn hvarfi undir bílnum þá burtu með hann strax.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 15:03
by Saxi
Sama og þegið Axel


Posted:
Thu 12. Feb 2009 15:05
by Axel Jóhann
Jæja, en taktu hvarfann undan strax, ef hann er stíflaður gæti þetta vel verið ástæðan.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 16:27
by Zed III
gunnar wrote:Taktu hvarfann bara undan og settu kuta i staðinn..
Billinn þinn er 94 argerð þannig það sleppur

Hvað er viðmiðið með þessa kúta ?

Posted:
Thu 12. Feb 2009 16:49
by birkire
DrWho wrote:gunnar wrote:Taktu hvarfann bara undan og settu kuta i staðinn..
Billinn þinn er 94 argerð þannig það sleppur

Hvað er viðmiðið með þessa kúta ?
Ertu að meina hvaða árgerðir mega sleppa hvarfa ? Ef svo er er það 95 árgerð og eldra.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 16:51
by Zed III
birkire wrote:DrWho wrote:gunnar wrote:Taktu hvarfann bara undan og settu kuta i staðinn..
Billinn þinn er 94 argerð þannig það sleppur

Hvað er viðmiðið með þessa kúta ?
Ertu að meina hvaða árgerðir mega sleppa hvarfa ? Ef svo er er það 95 árgerð og eldra.
Var einmitt að meina það. Takk fyrir svarið.

Posted:
Thu 12. Feb 2009 20:18
by Tommi Camaro
ónytur spíss

Posted:
Thu 12. Feb 2009 20:29
by HK RACING
Tommi Camaro wrote:ónytur spíss
Viltu ekki hafa áhyggjur af þínum eigin biluðu bílum áður en þú ferð að spá í annarra???


Posted:
Mon 16. Feb 2009 13:06
by Saxi
Jæja aðeins búinn að vera að doktora þetta síðan síðast
Fór með hann í bíltak þar sem þeir mældu bensínþrýsting og athuguðu með tíma. Hvort tveggja kom vel út.
Um helgina þjöppumældi ég bílinn og voru allir strokkar á bilinu 150 - 156psi. Ekki hæstu tölurnar en munurinn er lítill á milli þeirra.
Fékk svo lánað spíssarail með spíssum og smellti því í. Engin breyting
Fékk lánuð tvö háspennukefli. Skipti um tvö og tvö í einu og breyttist aldrei neitt.
Setti nýjan TPS í hann og breytti það engu
Athugaði pústið og það var gat á því við súrefnisskynjarann. Var soðið í það en breytti engu. (Gæti það bent til þess að ég hafi fengið gallaðan o2 skynjara eða hann endist bara ekki lengur en 1500km? )
Þessi bilun ætlar að verða heljarinnar hausverkur. Þegar hann gengur sem verst þarf ég að leggja út í kant og annaðhvort drepa á honum í smá stund eða bíða eftir því að hann fari að ganga betur. Þegar hann lagast er eins og ýtt sé á takka, allt í einu er allt í gúddí!
Einhver sem fær hugljómun við að lesa þetta?
Á eftir að athuga með vatnshitamælinn fyrir tölvuna og tékka á hvarfakútunum. Bankaði í þá þegar það var verið að sjóða í pústið og í öðrum heyrðist dúnk dúnk hljóð en í hinum meira hringlandi kling kling hljóð. Hefur það einhverja þýðingu og lýsir þessi bilun sér eins og hvarfinn gæti verið ónýtur? Hefði haldið að þá væri bíllilnn alltaf kraftlítill en ekki bara eftir hressilegar inngjafir 6000rpm+.
Endilega kommentið eitthvað á þetta.
Kveða
Egill