bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34483
Page 1 of 1

Author:  Brútus [ Thu 22. Jan 2009 01:49 ]
Post subject:  Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

Já.
semsagt þurkurnar velja sér nýjan start-point.
í staðinn fyrir að vinna frá neðst í upphafi eins og eðlilegt er þá eru þær komnar upp á miðja rúðu og vinna þaðan.
Er til lausn á þessu ?

Author:  IngvarRJ [ Thu 22. Jan 2009 03:17 ]
Post subject: 

Nú þekki ég ekkert hvernig þetta er í BMW en á flestum bílum er ró neðst á einum arminum,, á að duga að losa hana - færa þurrkurnar á réttan stað - herða aftur á.

Author:  Alpina [ Thu 22. Jan 2009 22:07 ]
Post subject: 

IngvarRJ wrote:
Nú þekki ég ekkert hvernig þetta er í BMW en á flestum bílum er ró neðst á einum arminum,, á að duga að losa hana - færa þurrkurnar á réttan stað - herða aftur á.


Ekki á E30 allavega

Author:  gunnar [ Fri 23. Jan 2009 00:40 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
IngvarRJ wrote:
Nú þekki ég ekkert hvernig þetta er í BMW en á flestum bílum er ró neðst á einum arminum,, á að duga að losa hana - færa þurrkurnar á réttan stað - herða aftur á.


Ekki á E30 allavega


A hvernig E30 ert þu eiginlega?

Það er ro einmitt neðst a arminum sem maður getur losað og fært rillurnar...

Author:  Steini B [ Fri 23. Jan 2009 00:43 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Alpina wrote:
IngvarRJ wrote:
Nú þekki ég ekkert hvernig þetta er í BMW en á flestum bílum er ró neðst á einum arminum,, á að duga að losa hana - færa þurrkurnar á réttan stað - herða aftur á.


Ekki á E30 allavega


A hvernig E30 ert þu eiginlega?

Það er ro einmitt neðst a arminum sem maður getur losað og fært rillurnar...
svona asnalegum með 1 rúðuþurku...

Author:  Lindemann [ Fri 23. Jan 2009 00:45 ]
Post subject: 

en ef báðar þurrkurnar eru búnar að færast jafn mikið....þá er vandamálið pottþétt annað....annaðhvort að mótorinn sjálfur sé búinn að spóla í rillunum eða það sé eitthvað brotið.........best að opna þetta bara til áð sjá það.

Author:  E-cdi [ Fri 23. Jan 2009 00:54 ]
Post subject: 

ruðuþurkumotorinn er að byrja bila hjá þér.. þetta gerðist í bil felaga mins.. man ekki hvort það bognaði armurinn sem stjornar þurkunum eða hvort það hafi verið motorinn sem bilaði.. þetta byrjaði ut frá því að hann kveikti á ruðuþurkunum í snjó og frosti og allt sat fast

Author:  Brútus [ Fri 23. Jan 2009 01:03 ]
Post subject: 

djöfuls .. .
já . . en ég náði að færa þær eitthvað aðeins neðar og þær eru svona til friðs ef að svo mætti segja.

en óþolandi.
Vona að hann lagi sig sjálfur eins og hann er svo oft vanur þessi elska.

Author:  totihs [ Fri 23. Jan 2009 01:12 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Vona að hann lagi sig sjálfur


gott plan ! :lol:

Author:  Brútus [ Tue 14. Apr 2009 05:56 ]
Post subject:  Re: Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

Nú er ég alveg kominn með nóg af þessu.
Semsagt sko þær velja sér botnpunkt sem er rétt fyrir ofan eðlilega rúðuþurkustöðu.
svo fara þær upp að þurrka , snúa svo við og fara niður eins og eðlilegt er en svo fara þær aftur aðeins upp.
Voðalega heimskulegt.
Með leitinni fann ég að tennurnar ættu það til að gefa sig í þessu og ég er að velta fyrir mér hvort að það gæti mögulga verið málið ? ?
Er einhver leið til að "defulta" rúðuþurkumótorinn . .
Eitt í viðbót
ástæðan fyri því að þurkan fer aftur upp í lokin . :
Ætli hún sé sú að þetta sé prógrammað þannig að þegar að hún finnur að hún er kominn á botn(of neðarlega) þá snúi hún við aftur upp
Eða ætli hún fari svona til baka af annari ástæðu og þá hverri ?
Hvernig er best að komast að þessum mótor ?
Er búinn að tæta af þessu allt en rúðuþurkumótorinn virðist lokaður inni í rími sem að ég er ekki að átta mig á hvernig ég kemst að.
Einhverjar hugmyndir ?

Author:  Dóri- [ Tue 14. Apr 2009 13:56 ]
Post subject:  Re: Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

ég lenti í þessu sama, þetta er rillurnar á mótornum sem hafa snuðað. getur prófað að losa upp á rónni og stilla þetta rétt. MUNA SVO EFTIR AÐ SKAFA RÚÐUNA ÞEGAR ÞAÐ ER SNJÓR/ÍS Á HENNI :D

Author:  gardara [ Tue 14. Apr 2009 14:05 ]
Post subject:  Re: Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

Lenti í þessu á gamla opelnum mínum... Mótorinn var ónýtur og það þurfti að kaupa nýjann...

Author:  Brútus [ Tue 14. Apr 2009 20:24 ]
Post subject:  Re: Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

Viti þið tveir mögulega hvernig hægt er að komas að þessu :S
En dóri ég veit með snjóinn :argh:

Author:  Dóri- [ Wed 15. Apr 2009 02:08 ]
Post subject:  Re: Rúðuþurkur velja sér nýjan botnpunkt E36

Brútus wrote:
Viti þið tveir mögulega hvernig hægt er að komas að þessu :S
En dóri ég veit með snjóinn :argh:


byrjaðu á að rífa rúðuþurrkuarmana af, taktu svo plastruslið sem er fyrir neðan framrúðuna af. Ef að þú ert með litlar hendur gæturðu komist að þessu þar. Ef ekki þá þarftu að rífa dæmið úr sem er numbero uno á þessari mynd
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=64&fg=99
það halda þessu 3 skrúfur með 8mm haus. Ein bílstjóramegin og tvær farþegamegin. Stykkinu er rennt upp.

Meðan þú ert með hendurnar þarna mæli ég með því að þú takir plastdæmið sem vatnið úr þessu lekur niður úr og hreinsir upp, þetta vill fyllast af allskonar drasli, gæti sparað þér vélartölvu í framtíðinni.
Nr 5 á þessari mynd.
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=41&fg=10

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/