Page 1 of 2
olíuleki m50b25

Posted:
Sun 18. Jan 2009 14:24
by Zed III
daginn gæðingar,
Hvaða stútur er þetta sem sést á myndinni með olíudropanum við hliðina á pústgreininni (myndin er tekin neðanfrá) og getur verið að olíulekinn minn sé að koma frá honum ?
Ég er að vona að þetta sé ekki heddpakkningin sem er farinn en það gæti þó alveg verið.


Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:16
by Axel Jóhann
Ef þetta er rétt munað hjá mér þá er þetta tappinn til að tæma frostlög af blokkinni.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:20
by Zed III
dam, ef svo er þá er afar ólíklegt að olíulekinn sé að koma þaðan.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:28
by Axel Jóhann
Athugaðu líka ventlaloks pakkninguna.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:33
by Zed III
Búinn að skipta um ventlalokspakkninguna, engin leki með henni núna.
Eru nokkuð margir staðir sem koma til greina þegar olían er svona ofarlega, þ.e. annað hvort ventlalokspakkningin eða heddpakkningin ?

Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:36
by Axel Jóhann
Ja, þessi tappi er á heddinu er það ekki?
Þannig að hann er fyrir ofan heddpakkninguna.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 15:49
by x5power
þetta er keðju strekkjarinn, lekur koparskinnan.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 17:04
by JaguarXJ6
x5power wrote:þetta er keðju strekkjarinn, lekur koparskinnan.
veist þú hvort að keðjustrekkjarinn á m42b18 sé svona, er ekki annars bara hægt að skrúfa úr og setja annann í?


Posted:
Sun 18. Jan 2009 17:06
by Lindemann
já það er hægt að skrúfa bara úr og annan í.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 17:12
by JaguarXJ6
Lindemann wrote:já það er hægt að skrúfa bara úr og annan í.
þá veit ég það, takk fyrir mig


Posted:
Sun 18. Jan 2009 17:59
by Tommi Camaro
prufaðu að taka á henni

Posted:
Sun 18. Jan 2009 18:03
by Dóri-
Lindemann wrote:já það er hægt að skrúfa bara úr og annan í.
og helst strekkjarinn sem er fyrir innan á réttum stað ?

Posted:
Sun 18. Jan 2009 19:31
by Zed III
x5power wrote:þetta er keðju strekkjarinn, lekur koparskinnan.
Fæ kannski að líta við hjá þér við tækifæri meistari fyrir leiðbeiningar, varahluti ef þarf og reset á air-bag ljósinu.

Posted:
Sun 18. Jan 2009 19:44
by Zed III
Tommi Camaro wrote:prufaðu að taka á henni
ert þú að meina að herða bara upp á þessu ?

Posted:
Sun 18. Jan 2009 21:13
by x5power
keyptu bara nyjar koparskinnu a þetta, lang best.