Page 1 of 1

Afturljósavesen á E36 316i

PostPosted: Fri 16. Jan 2009 15:49
by Röggi R900
Sælir, ég er núna að vesenast í 1994 BMW E36 316i og ég er í basli að koma afturljósunum í lag

Getiði komið með einhverja pointers um það hvað gæti verið að hjá mér

S.s. biluninn sem er í honum er þannig að Kerrutengillinn er í algeru fokki, Jörðin er líklega eitthvað biluð
Bremsuljósin eru þar sem þokuljósin eiga að vera og öfugt
Bakkljósin virka ekki.

er einhvers staðar hægt að nálgast rafmagnsteikningu á netinu eða einhverjar upplýsingar einhvers staðar

PostPosted: Fri 16. Jan 2009 15:52
by Zed III

PostPosted: Sat 17. Jan 2009 12:14
by Röggi R900
Er að downloada því... tekur bara sinn tíma...

Afturljósin eru sprunginn og það var vatn inní þeim og voru farinn að ryðga svoldið, getur það verið orsaka valdurinn ??

PostPosted: Sat 17. Jan 2009 13:55
by Zed III
vatn leiðir rafmagn þ.a. þetta er meira en líklegt. Prufaðu bara að þurka dótið, þrífa það og skipta um perur sem eru geinilega ónýtar. Renndu líka yfir vírana þar sem þú kemst að og athugaðu hvort þeir leiði eitthvað út.

Ef afturljósin eru í tómri steik gæti verið sniðugt að tékka bara upp í Vöku og redda öðrum.

PostPosted: Sat 17. Jan 2009 15:15
by Röggi R900
Ég er einmitt búinn að þurrka þau og skipta um ónýtar perur, svo hreinsaði ég allt ryð sem var aftan á ljósinu, skánaði örlítið en ekkert til að tala um...

PostPosted: Sat 17. Jan 2009 17:30
by Zed III
ég mæli með að þú testir Vöku, sérstaklega ef ryðið er mikið. Þeir fá reglulega svona e36 inn og þeir eru afar liðlegir á verðunum.