bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bremsudæla á 318 e36 þrýstist saman eftir smá akstur
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34158
Page 1 of 1

Author:  grettir [ Wed 07. Jan 2009 13:10 ]
Post subject:  Bremsudæla á 318 e36 þrýstist saman eftir smá akstur

Ég er að glíma við smá vandamál á e36 bílnum mínum sem byrjaði í haust.

Þetta lýsir sér þannig að eftir nokkurra kílómetra akstur byrjar annað framhjól að bremsa smátt og smátt. Þegar bíllinn er búinn að standa í smátíma (hálftími er nóg) þá er dælan laus og liðug.
Ég er ca. 10 mínútur í vinnu og þá verð ég ekki var við neitt, en ef ég er að keyra lengur en það, þá byrjar dælan smátt og smátt að þrýstast saman.

Sjáið þið fyrir ykkur hvað þetta er að gera fyrir kraftinn á m40b18 mótor :lol:

Ég er búinn að taka dæluna undan og hún er alveg laus og liðug, þannig að það er ekki málið að hún festist.

Getið þið ímyndað ykkur hvað getur verið vandamálið?

Author:  Axel Jóhann [ Wed 07. Jan 2009 13:13 ]
Post subject: 

>Færslurnar í dælunni eru örugglega ósmurðar.

Author:  grettir [ Wed 07. Jan 2009 14:54 ]
Post subject: 

Ég hélt það og reif hana undan, en hún virkar alveg laus og liðug. Það er nefnilega svo skrýtið að hún skuli alltaf vera fín eftir smá kólnun og skuli ekki festast á styttri leiðum.

Author:  E-cdi [ Wed 07. Jan 2009 15:11 ]
Post subject: 

grettir wrote:
Ég hélt það og reif hana undan, en hún virkar alveg laus og liðug. Það er nefnilega svo skrýtið að hún skuli alltaf vera fín eftir smá kólnun og skuli ekki festast á styttri leiðum.

ég lennti í þessu á minum 318.

ég skipti bara um dælu og malið varð úr söguni :)

Author:  Angelic0- [ Wed 07. Jan 2009 16:33 ]
Post subject: 

Þetta er sama vandamál og hjá mér á E39 M5...

ég skýt á að ABS höfuðdælan sé eitthvað að bulla... en ég veit ekki samt...

Author:  grettir [ Wed 07. Jan 2009 20:23 ]
Post subject: 

Já, ætli það endi ekki með því að maður skiptir um dælu :(

Það er ekki ABS á bílnum. Bara gamaldags græjur 8)

Author:  Lindemann [ Wed 07. Jan 2009 23:14 ]
Post subject: 

Ekkert ólíklegt að þetta sé dælan, best að athuga hvort stimpillinn gangi ekki alveg inn án mikilla átaka annars kaupiru bara sett í hana og skiptir um þéttingu á stimplinum og þrífur upp.

Svo hef ég reyndar lent í bíl sem gerði þetta og þá var ónýt höfuðdælan.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/