Page 1 of 2
Topplugan!

Posted:
Mon 17. Nov 2003 20:00
by Rooy
Sælt veri folkið!
Eg lenti sma veseni i gær og var að forvitnast hvort e-r her hefði visku til að miðla að mer i von um að geta fundið hvað er að..
Eg a BMW 318 E-46 og ætlaði að opna hja mer luguna (gleymdi að það væri frost uti) og hun gat ekki opnað sig (eðlilega) ..
Svo þegar tok að þyða galopnaði opnaði eg luguna og allt var i orden en þegar eg ætlaði að loka henni aftur lokaðist hun ekki alveg.. Svo þegar eg ætlaði mer að halla henni upp þa lokaðist hin alveg en hallaðist ekki upp!?? Furðulegt.. Það er eins og það se ekkert skemmt en e-r villumelding i stjorntækjum..
Malið er að eg by ekki a höfuðborgarsvæðinu til að fa þa i B&L til að kikja a þetta þannig eg bið um hjalp! Gæti það virkað að taka geyminn ur sambandi og reyna að nullstilla rafmagnskerfið þannig eða fikta e-ð i öryggjunum?
Endilega sma hjalp!!

Posted:
Mon 17. Nov 2003 20:41
by saemi
Mér finnst líklegast að það þurfi að stilla hana upp á nýtt. Ég myndi DEFINATELY tala við B&L áður en ég færi að gera eitthvað sjálfur. Finnst frekar ólíklegt að það virki að "resetta" eitthvað.

Posted:
Mon 17. Nov 2003 21:05
by Svezel
Það á að vera hægt að resetta lúguna með því að halda takkanum inni í 15sek, veit ekki hvort það virkar í þessu tilfelli en það má reyna.

Posted:
Mon 17. Nov 2003 21:17
by Rooy
Takk fyrir þetta strakar!
Þetta með að halda takkanum virkaði ekki þannig maður ætti vist að bjalla i B&L..
Maður er hreinlega farinn að skammast sin! Alltaf að hringja, alltaf e-ð að!

ruslalúga

Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:26
by Þórður Helgason
Talandi um topplúgur. Er ekki hjá ykkur líka að ef lúgan er alveg opin, og enginn gluggi opinn, að það myndast hvifilbylur af rusli, pappír og þh. ef farið er yfir hundrað km/klst. Og allt ruslið fer upp um lúguna. Þetta gerði manni ákaflega auðvelt að taka til í bílnum en því miður fór allt upp um lúguna, ekki bara ruslið.
Í mínum gamla ´68 var þetta alveg brandari, er hönnunin eitthvað betri í dag eða er þetta lögmál?
PS mínar hafa allar verið með sveif, ekkert til að resetta þar.

Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:28
by bjahja
Maður er bara ekki mð pappír né rusl í bílnum


Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:17
by Raggi M5
bjahja wrote:Maður er bara ekki mð pappír né rusl í bílnum

Hreinn bíll= Fagur bíll
Segi ég alltaf ef einhver fer að væla um að ég sé að henda drasli úr bílnum


Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:23
by Jss
Raggi M5 wrote:bjahja wrote:Maður er bara ekki mð pappír né rusl í bílnum

Hreinn bíll= Fagur bíll

Segi ég alltaf ef einhver fer að væla um að ég sé að henda drasli úr bílnum

Það á ekki að henda rusli á götuna !
Þar að auki þá eiga bílar sem hent er rusli úr það til að fá á sig leiðinda "stimpil" maður hefur alveg tekið eftir þessu hjá hinum og þessum

Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:26
by Raggi M5
Jss wrote:Raggi M5 wrote:bjahja wrote:Maður er bara ekki mð pappír né rusl í bílnum

Hreinn bíll= Fagur bíll

Segi ég alltaf ef einhver fer að væla um að ég sé að henda drasli úr bílnum

Það á ekki að henda rusli á götuna !
Þar að auki þá eiga bílar sem hent er rusli úr það til að fá á sig leiðinda "stimpil" maður hefur alveg tekið eftir þessu hjá hinum og þessum
Yes mother


Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:27
by bebecar
Ég bilast algjörlega þegar ég sé fólk henda rusli út úr bílunum sínum! Tók einn all svakalega á beinið á leið upp í landmannalaugar, hann hendi nammibréfinu bara beint út um gluggan eins og ekkert væri.
Ég sagði honum bara eins og væri að hann væri sóði og skyldi hirða þetta upp!

Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:28
by Jss
bebecar wrote:Ég bilast algjörlega þegar ég sé fólk henda rusli út úr bílunum sínum! Tók einn all svakalega á beinið á leið upp í landmannalaugar, hann hendi nammibréfinu bara beint út um gluggan eins og ekkert væri.
Ég sagði honum bara eins og væri að hann væri sóði og skyldi hirða þetta upp!

:clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap::clap:
Góður

Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:30
by bjahja
Já maður á að henda rusli í ruslið

Posted:
Tue 18. Nov 2003 09:37
by bebecar
Auðvitað - nammi bréf og sígarettustubbar endast svona 5 ár í náttúrunni. Viðbjóður svona sóðar.
Svo er bara næsta skref hvað hægt er að gera til að draga úr tyggjóslummum á gangstéttum sem er afskaplega hvimleiður andskoti.

Posted:
Tue 18. Nov 2003 10:51
by iar
bebecar wrote:Ég bilast algjörlega þegar ég sé fólk henda rusli út úr bílunum sínum! Tók einn all svakalega á beinið á leið upp í landmannalaugar, hann hendi nammibréfinu bara beint út um gluggan eins og ekkert væri.
Ég sagði honum bara eins og væri að hann væri sóði og skyldi hirða þetta upp!
Glæsilegt! Það á að láta svona lið heyra það, þetta er svo fáránlegt.
Og þetta er ekkert betra innanbæjar. Er alltaf að lenda í því að bíllinn fyrir framan mig grýtir út um rúðuna plastflöskum eða ámóta. Blikka yfirleitt og jafnvel flauta aðeins á liðið þegar þetta gerist. Finnst lágmark að láta fólkið vita að það hafi "misst" eitthvað.


Posted:
Tue 18. Nov 2003 11:25
by bebecar
Sóðar - hvernig ætli sé heima hjá þessu fólki?