bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rafeindaverkstæði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34101
Page 1 of 1

Author:  jens [ Mon 05. Jan 2009 10:44 ]
Post subject:  Rafeindaverkstæði

Langar að sjá hvort einhver hafi gott rafeindaverkstæði til að benda mér á. Málið er að ég er með Bose hljóðkerfi og svo virðist vera að farinn sé einn útgangur í, umboðsaðilinn segir að ekkert sé til í þetta þannig að mig vantar að komast í sambandi við klárann rafeindavirkja upp á framhaldið til að panta í tækið o.s f.v. Öll hjálp vel þegin.

Author:  gstuning [ Mon 05. Jan 2009 13:04 ]
Post subject: 

er ekki bara dautt MOSFET?

opnaðu boxið og líttu eftir svona gaurum eða einhverju mjög líku,
Ef hann er dauður þá er hann brunninn með ummerkjum eða lykt.

Image

Author:  saemi [ Mon 05. Jan 2009 13:26 ]
Post subject: 

eða MOFO

:lol:

Author:  jens [ Mon 05. Jan 2009 14:40 ]
Post subject: 

Já er búin að skoða transitorana en sé ekkert á þeim, þetta lýsir sér þannig að það er eins og útgangurinn skammhleypi annað slagið með tilheyrandi braki og látum. Búin að vixla hátölurum og mæla út hátalaravíra.

Author:  emilth [ Mon 05. Jan 2009 15:05 ]
Post subject: 

Tékkaðu á Sónn niðrí faxafeni, þeir geta kannski kíkt á þetta fyrir þig :wink:

http://www.sonn.is

Author:  crashed [ Mon 05. Jan 2009 20:10 ]
Post subject: 

hljómar eins og ónítur þéttir

Author:  Hlynzi [ Mon 05. Jan 2009 23:32 ]
Post subject: 

Eru sense ekki með verkstæði fyrir þetta ?

Hljómar ekki eins og transistor bilun, líklegra að þetta sé þéttir eða léleg tenging á prentrásinni. (kaldlóðning)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/