Page 1 of 1

Smá pikles í Bimmanum

PostPosted: Sat 15. Nov 2003 23:43
by BMW_Owner
Hvað getur verið að ef vélin lætur þannig að fyrst þegar maður setur hana í gang þá keyrir hún auðvitað venjulega en svo þegar þú ferð að gefa í (ekki til að spóla eða neitt þannig) bara til að annað hvort til að bakka eða eitthvað þá dettur hann allt í einu niður bara úr lausagangi í einhver mikin hægan snúning ekki lengi bara 0.70sek og svo upp, stundum koma meira segja ljós í mæla borðið eins og hann sé að fara drepa á sér....á erfitt með að sjá hvað bíllinn er að gera því (enginn snúningmælir) en svo hættir þetta þegar hann er farinn að hitna eða er orðinn heitur.Getur verið að kertin séu orðin gömul eða þreytt og líka þá missir hann út úr gangi þú veist eins og hann kveiki ekki í öllum stimplum.
eða hvað sem þetta heitir....

kv.BMW_Owner

í von um einhverjar lausnir......

PostPosted: Sat 15. Nov 2003 23:46
by Gulag
ég myndi byrja á að skipta um kerti og smella smá innspýtingahreinsi í bensínið...

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 09:17
by Raggi M5
Og það getur líka verið að kertaþræðirnir séu orðnir slappir.

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 12:15
by BMW_Owner
kertin líta út fyrir að vera nýleg(þó ég sé enginn Kertasérfræðingur) og eru kertaþræðirnir mikið að fara?

BMW_Owner

Re: Smá pikles í Bimmanum

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 16:34
by Bimmser
BMW_Owner wrote:Hvað getur verið að ef vélin lætur þannig að fyrst þegar maður setur hana í gang þá keyrir hún auðvitað venjulega en svo þegar þú ferð að gefa í (ekki til að spóla eða neitt þannig) bara til að annað hvort til að bakka eða eitthvað þá dettur hann allt í einu niður bara úr lausagangi í einhver mikin hægan snúning ekki lengi bara 0.70sek og svo upp, stundum koma meira segja ljós í mæla borðið eins og hann sé að fara drepa á sér....á erfitt með að sjá hvað bíllinn er að gera því (enginn snúningmælir) en svo hættir þetta þegar hann er farinn að hitna eða er orðinn heitur.Getur verið að kertin séu orðin gömul eða þreytt og líka þá missir hann út úr gangi þú veist eins og hann kveiki ekki í öllum stimplum.
eða hvað sem þetta heitir....

kv.BMW_Owner



í von um einhverjar lausnir......

Gerist stundum hjá mér, en gleymi alltaf að kíkja á þetta :oops:

PostPosted: Mon 24. Nov 2003 00:23
by gstuning
Getur verið að loftflæðimælirinn ef þú ert með svona AFM að hún sé að festast,

svo eru það vacuum lekar og lausagangs rofinn,, vacuum lekar,
og athuga vacuum leka

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 14:36
by BMW_Owner
hvað er veccum leki????? hef nefnilega ekki hugmynd eina sem mér datt í hug var að kertin væru orðin slöpp en reyndar er það með mig að ég held öllu alltaf eins einfalt og það getur orðið:d

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 14:49
by arnib
BMW_Owner wrote:hvað er veccum leki????? hef nefnilega ekki hugmynd eina sem mér datt í hug var að kertin væru orðin slöpp en reyndar er það með mig að ég held öllu alltaf eins einfalt og það getur orðið:d


Nokkrir hlutir í vélinni þurfa á "vacuum" að halda, en það er útlenska fyrir undirþrýsting (reyndar lofttæmi :roll:). Þessir hlutir eru yfirleitt tengdir með mjóum gúmmíslöngum við t.d. innsogsgreinina (krabbann ofan á vélinni) og ef þær slöngur leka (er gat á þeim) þá er vacuum leki hjá þér.
Þú ættir því að skoða þessar slöngur allar, og jafnvel bara skipta þeim út til að athuga hvort að þetta sé vandamálið.